Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2010

Forsetinn og ferðalög á dagskrá

 

Það var mikið um að vera hjá krökkunum í kvöld. Haraldur Davíðsson skellti kjötsúpu fyrir allt gengið og rúmlega það því það voru gestir. Fær hann þakkir sem og Embla Dís sem lagaði dýrindis kvöldverð á mánudaginn.

Teknar voru myndir - sem birtast síðar - af liðinu með buff á höfði sem Actavis gaf krökkunum, auk þess að styrkja Kalak til að gera eitthvað skemmtilegt með þeim, og svo bárust þeim gjafir frá Flugfélagi Íslands, bolir, húfur o.fl. en Flugfélagið hefur komið vel til móts við Grænlandsverkefni Hróksins og komu sundkrakkanna undanfarin ár og gert þetta allt saman kleift.

Teflt var á öllum þremur skákborðum sem á gistiheimilinu eru fram eftir kvöldi og á morgun er heimsókn á Bessastaði og á föstudaginn verður farið í hressandi ferðalag um hinn gullna hring. Það er ekki oft sem hægt er að fara í rútuferðalag þegar maður býr í landi þar sem engir vegir eru fyrir utan litla bæinn manns.

En skólalífið heldur áfram, með samvinnu íslenskra og grænlenskra barna, og tilheyrandi sundferðum.

 


Helgin

 

Helgin var viðburðarrík hjá krökkunum. Þau fóru í húsdýragarðinn í boði ÍTR og sáu fullt af dýrum sem þau aldrei höfðu séð. Sum fengu að fara á hestbak sem var algjörlega ný upplifun. Fyrir þau sem ekki fóru á bak var líka algjörlega ný upplifun að sjá hesta!

Svo fóru þau í Smáralindina og fríkuðu aðeins út þar, enda stærra en kaupfélagið í Kulusuk eða Isortoq. Og í bíó í boði þeirra hjá Senu sem hafa árlega verið svo vinsamlega að bjóða hópnum í bíó.

Einnig fengu þau tvisvar passlega hollan skyndimat á veitingastöðum svo gleðin var hreinræktuð og algjör. Myndir síðar en á morgun hefst alvaran aftur, sem reyndar er ekkert nema stuð því þá er sund bæði fyrir og eftir hádegi og þau hitta vini sína í skólanum.

sundkrakkar við nám í kópavogi

mynd: Lars Peter Stirling


að læra meira í dag en í gær

 

sundkrakkar, að tafliEftir ríflega tuttugu ferðir Hróksins til austurstrandar Grænlands og skákkennslu í öllum byggðum þar undanfarin ár, þar sem gefin hafa verið hátt í þúsund skáksett, kunna allir krakkar mannganginn og sum eru orðin býsna fær í skáklistinni. Löberen -biskupinn - í Tasiilaq er virkasta félagið af þeim þremur sem stofnuð hafa verið þarna westurfrá og heldur reglulega mót.

 

Krakkarnir eru æstir í að tefla og í skólanum skora þau á innfædda í gríð og erg og tefla sín á milli, þar eða heima á gistiheimilinu í Kópavogi.

 

Tengslin sem íslensku og krakkarnir ná sín á milli í skólanum eru mikil og góð og mikil vinátta enda gaman að kynnast mismunandi heimum. Þegar kveðjustund hefur runnið upp í fyrri ferðum hafa mörg tárin fallið. Heimsóknir barnanna frá litlu og einangruðu þorpa austurstrandar Grænlands eru fastur liður í skipulagi skólayfirvalda í Kópavogi sem hafa staðið sig gríðarlega vel í þessu magnaða verkefni.

sundkrakkar, í skólanum

myndir: Lars Peter Stirling


Fjörið framundan

sundkrakkar, íslensk krosskönguló, grænlenskir fingur

mynd: Lars Peter Stirling

Eftir að börn og fararstjórar höfðu komið sér fyrir í Kópavoginum var lagt í vísindaferð. Hér má sjá íslenska krosskönguló og grænlenska fingur.

Helgin verður mögnuð hjá krökkunum. Þau hjá ÍTR voru svo indæl að bjóða hópnum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn en dýralífið á austurströnd Grænlands er ólíkt því hér á landi. Hestar, kýr og kindur sjást ekki, en hugsanlega hreindýr þarna nyrst og auðvitað eru selir út um allt! Skúli Pálsson, gjaldkeri Kalak, lóðsar hópinn um garðinn.

Sena hefur árlega boðið krökkunum í bíó og á sunnudag mun sprækir krakkar sjá Karate kid í Smárabíói. Verða væntanlega ekki minna sprækir eftir það. Grænlandsfararnir Embla Dís og Róbert Lagerman, tvöfaldur Grænlandsmeistari í skák, ætla að læra karate með krökkunum.

Actavis veitti Kalak styrk til að gera eitthvað skemmtilegt með þessum úberhressa hóp og kemur það sér afskaplega vel þar sem ekki eru digrir sjóðir. Actavis, ásamt fleiri fyrirtækjum, sá til þess að allir þátttakendur í skákferð Hróksins til Scoresbysunds, fengu veglega vinninga um sl. páska.

Bendum á viðtal við Skúla og umfjöllun um komu barnanna í Fréttablaðinu þriðjudaginn 21. september:

http://vefblod.visir.is/index.php?s=4411&p=99568

http://vefblod.visir.is/index.php?s=4411&p=99567


Meistari John

 

sundkrakkar, john sprækurHann John er einhver virkasti skákmaður í Ittoqqortoormitt, tæplega fimm hundruð manna bæ við Scoresbysund. Hann er ætíð kátur og finnst gott að búa í Kópavogi, þó tímabundið sé, og best að vera í Salalaug.

 

 

 

sundkrakkar - john og daniel í scoresbyHér er hann ásamt vini sínum Daníel með bók Óttars Norðfjörð, um skákir föður síns Sverris Norðfjörð, sl. páskadag þar sem hann heilsaði upp á sendifulltrúa Hróksins í heimabæ sínum.


það jafnast ekkert á við bað...

sundkrakkar, stelpurnar að læra

mynd: Lars Peter Stirling

Þau eru eldhress börnin frá: Kulusuk, Sermeligaq, Kuumiut, Tinith-Tiqilaq, Isortoq og Ittoqqortoormiit þegar þau komast í Salalaugina. Fæst hafa farið í sund áður, en nokkur fengið smá tilsögn í vötnum þegar ísa leysir!

Þau hafa reyndar fæst farið í flugvél áður, eða bíó, eða séð hesta og kindur og hvað þá eitthvað líkt Kringlunni og Smáralind. En þetta allt, og meira til, er á dagskránni.


Austurgrænlensku sundkrakkarnir mættir

 

sundkrakkar í kópavogi 

mynd: Lars Peter Stirling

Haustið 2006 buðu Hrókurinn og Kalak - vinafélag Íslands og Grænlands - börnum á ellefta ári frá litlu þorpum Austur-Grænlands að koma til Íslands til að læra að synda. Þótti ótækt að börnin sem lifa þarna við ströndina í fiskiþorpunum kynnu það ekki, enda lífsspursmál. Aðeins ein sundlaug var þá á Grænlandi og það í Nuuk, höfuðstaðnum á vesturströndinni. Þess má geta að félagar í skákfélagi Háskólans í Reykjavík söfnuðu hálfri milljón í verkefnið og munaði um minna.

Lars Peter Stirling, skólastjóri í Kulusuk hefur haldið utan um verkefnið á Grænlandi og nú eru krakkarnir að koma í fimmta sinn. Kalak sér um komu barnanna sem styrkt er af Alþingi og Kópavogsbæ, þar sem börnin búa, stunda skóla með íslenskum jafnöldrum og læra að synda, bæði á morgnana og aftur eftir hádegi. Flugfélag Íslands hefur styrkt þetta ævintýri frá upphafi.

Börnin stunda sundnámið í Salalaug en almennt nám við Hörðuvalla- og Smáraskóla þar sem ótrúlega vel gengur að kynnast íslensku krökkunum, þrátt fyrir ólíkan bakgrunn og menningu.

Nú hefur Sermersooq kommúna, sem nær frá Nuuk og yfir meginpart austurstrandarinnar einnig, og er u.þ.b. sex sinnum stærri en Ísland, komið að þessu með fjármagni svo vonandi verður engin breyting á komu þessara eldhressu krakka til Íslands næstu árin.

 

 


Leiðangursmenn

,,Við erum ein fjölskylda"
,,Við erum ein fjölskylda"

Fréttir af landnámi skákarinnar og starfi Hróksins og Kalak á Grænlandi.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband