Færsluflokkur: Bloggar
13.11.2006 | 19:10
Hlýir straumar í Tasiilaq
Síðla laugardags sigldum við frá Kulusuk áleiðis til Tasiilaq. þegar komið var til Tasiilaq fengum við smá smjörþef af grænlensku tímaskyni, við þurftum að bíða fjórar klukkustundir fyrir utan höfnina vegna þess að síðasta olíuskip sumarsins var að losa og höfnin lokuð. Við komumst að lokum upp að bryggju, þar biðu John Cristiansen og fjölskylda hans eftir okkur. Þau sáu um að keyra okkur og allt okkar hafurtask í íbúðina sem þau höfðu útvegað okkur.
Sunnudagurinn fór í að koma sér fyrir og seinnipartinn sigldi Kristinn ásamt túlknum okkar henni Nauju og ísmanninum til Kuummiut.
Við Björn létum fara vel um okkur og bjuggum okkur undir kennslu mánudagsins.
Manudagurinn rann upp veðrið stillt og smá snjókoma. Í skólanum var okkur tekið með kostum og kynjum. Við tókum þegar til óspilltra málanna og hófum kennsluna og gekk bara vel.
Í hvert sinn sem við birtumst var okkur tekið með gleðiópum og fögnuði. Þegar við höfðum kynnt okkur með "Stefani-mi aterqapua , Björni-mi aterqapit" braust út hlátur vegna okkar klaufalegu tilraunum við að tala grænlensku.
Hvar sem við komum var okkur heilsað með hlýum handaböndum og faðmlögum, það er ljóst að við erum auðfúsugestir hér í Tasiilaq.
Í samtali við einn af sérkennurunum í sérkennslubekkjunum kom fram að sálfræðingarnir eru alveg hissa á að börnunum gengur vel að læra að tefla þó að þau nái litlum árangri í öðrum fögum.
Skák er góð
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2006 | 17:09
Líf og fjör í kulusuk; en Dauðinn aldrei langt undan
Kulusuk, sunnudagur 12.nóvember. 2006
Fórum snemma á fætur að grænlenskum tíma en heldur seint að íslenskum, tímamismunurinn er 3 tímar. Byrjuðum daginn á því að þiggja brauð og kaffi af höfðingjanum Lars Peter. Því næst var komið að fóðra hundana, en Lars gefur sínum níu hundum annan eða þriðja hvern dag. Sumstaðar er þeim ekki gefið nema einu sinni í viku. Ein tíkin hans er með mánaðargamla hvolpa og það sorglega blasti við að einn af fjórum hafði dáið um nóttina. En það voru aldeilis fagnaðarlætin þegar hundarnir sáu í hvað stemmdi. MATUR! Ýlfrið og lætin voru þvílík, lá við blóðugum slagsmálum. Meira að segja litlu hvolparnir voru farnir að færa sig uppá skaftið.
Eftir herlegheitin með hundunum fórum við Óli í göngutúr um bæinn að bjóða góðan daginn. Fengum iðulega vinalega kveðju á móti. Skunduðum niður á höfn og þar blasti við fengur dagsins, risaselurinn Snorri, ætli hann hafi ekki verið hátt í tveir metrar að lengd og ca 2x Óli í dúnúlpu að þykkt. Þvílíkt flykki! Tókum röltið frá höfninni og í gegnum bæinn. Hér er lítið um barnavagna eða kerrur, fólk notar snjóþotur og sleða, og ef þú rekst á kerru þá er hún á hvolfi grafin í fönn. Áfram héldum við og komum að sjónum hinum megin frá. Þar voru tveir ungir menn þesslegir að þeir ætluðu á veiðar, og jafn vel nýkomnir af veiðum líka því það var blóði drifin slóð frá sjónum og upp að landi. Hófst nú mikill undirbúningur fyrir skákkennslu mánudagsins.
ÍAR
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2006 | 16:43
Kúlusúkk- klárlega málið!
Kulusuk, laugardaginn 11. nóv 2006
Jæja, þá er leiðangurinn aldeilis kominn á fullt skrið!
Á Reykjavíkurflugvelli byrjuðum við á því að heiðra prófessor Ágúst Einarsson, enda engin vanþörf á! Þá tók við tveggja tíma flug til Kulusuk flugvallar, en þar tóku á móti okkur Nauja Boassen, sem hafði verið túlkur Kátu biskupanna í hinum fræga Kuumiiut-leiðangri í ágúst, og Lars Peter skólastjóri í Kulusuk. Við tók hálftíma gangur frá vellinum í bæinn. Stefán Herbertsson reddaði póstbílnum undir farangurinn. Við skunduðum rakleiðis niður á höfn, þar sem hinn alræmdi Ísmaður (Sigurður Pétursson) beið okkar og fylltum bátinn hans af skákbúnaði og öllu því nauðsynlega góssi sem svona fyrirtæki þarf á að halda. Þvínæst vorum við boðin í te og kex til Lars Peter, sem sýndi okkur m.a ótrúlega hræðilega grænlenska gestaþraut sem enginn náði að ráða fram úr. (Þ.e að sjálfsögðu að Stefáni Herbertssyni undanskildum, en hann er refur og hefur sjálfsagt fengið lausnina hjá heimamönnum með einhverjum bellibrögðum) Að þessu loknu fórum við í skákhöllina og tókum púlsinn á birgðastöðunni, hentum því sem upp á vantaði í flaggskip skákinnrásarinnar; "Þyt". Þar kvöddu þeir Stefán, Björn og Kristinn, enda ekki stætt á því að hangsa í verkefni af þessu tagi! Munu þeir Stefán og Björn hafa ætlað til Taasilaq í frægðarferð til dýrðar skákgyðjunni, en Kristinn til Kuumiiut að vinna glæsta sigra! Við Íris urðum eftir í Kulusuk. Lars Peter hafði boðið okkur gistingu og tók nú við dýrindisveisla, enda komumst við fljótlega að því að Lars Peter kann ekkert að kokka nema einhverja snilld. Íslenska listakonan Ráðhildur snæddi með okkur, en hún dvelur í Kulusuk meðan verkefni hennar stendur yfir: að kvikmynda drauma fólks! Fórum við Íris nú fljótlega að leggja drög að okkar eigin draumförum.
OKG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2006 | 18:11
Leiðangur Hróksins og félaga til Austur-Grænlands
Laugardaginn 11. nóvember fer leiðangur á vegum Hróksins og félaga til Grænlands. Þrjú þorp á austurströndinni verða heimsótt næstu vikuna, efnt til kennslu í skólum og skákviðburða, auk þess sem heill árgangur barna á þessu svæði fær taflsett að gjöf.
Leiðangursstjóri er Stefán Herbertsson, formaður Kalak - vinafélags Íslands og Grænlands, og liðsmenn eru Ólafur Kolbeinn Guðmundsson, Íris Randversdóttir, Kristinn Einarsson, Björn Karlsson og Hrafn Jökulsson.
Flogið verður frá Reykjavíkurflugvelli til Kulusuk, og leggur Flugfélag Íslands til farmiða leiðangursmanna en FÍ hefur frá upphafi stutt ötullega við skáklandnám Hróksins á Grænlandi. Safnað var fyrir öðrum kostnaði við leiðangurinn með Maraþoni Vodafone og Hróksins í Kringlunni um sl. helgi, en þá tefldi Hrafn Jökulsson 250 skákir á 34 klst.
Í Kulusuk mun sjöundi liðsmaðurinn bætast í hópinn: Sigurður Pétursson veiðimaður og skipstjóri, sem býr í þorpinu Kuummiit.
Þau Ólafur og Íris verða í Kulusuk, Stefán, Björn og Hrafn verða í Tasiilaq og Kristinn siglir áfram með Sigurði til Kuummiit. Skákvika verður í grunnskólum þorpanna þriggja, og í lokin verður efnt til skólaskákmóts í Tasiilaq.
Um 70 börn á austurströndinni fá nú taflsett að gjöf, auk glaðnings frá vinum á Íslandi. Penninn, Vífilfell, Nói Síríus, Glitnir og fleiri leggja til verðlaun og vinninga.
Leiðangursmenn munu blogga á www.godurgranni.blog.is/ og setja inn ljósmyndir eftir föngum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Spurt er
Tenglar
Grænlandsvinir
- Kalak Vinafélag Íslands og Grænlands
- Flugfélag Íslands Taktu flugið
- Penninn Styður starf Hróksins og félaga á Grænlandi!
- Íslenskt grænmeti Styður starf Hróksins og félaga á Grænlandi
- Henson Laaangflottastur!
- Bónus
- Cintamani Flottar flíkur í fimbulkulda
- Sögur útgáfa
- Actavis Hagur í heilsu
- Ísspor Verðlaunagripir
- Atlantsolía
- Fjallið Hvíta
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 1691
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar