3.4.2012 | 22:35
16 ára stúlka sigraði á stórmóti Pennans-Eymundsson og Ísspors
Enn einn dásamlegur dagur á Grænlandi. Við heimsóttum grunnskólann í morgun og fórum yfir undirstöðuatriði skáklistarinnar -- en þess gerðist varla þörf, því eftir fimm ára starf á 70. breiddargráðu eru öll börnin í ísbjarnarbænum með jafnvel hin fínustu blæbrigði skáklistarinnar á hreinu.
Seinnipartinn var svo efnt til sannkallaðs stórmóts, með tilstyrk Pennans-Eymundsson og Ísspors. 50 börn á grunnskólaaldri tefldu og leikgleðin var allsráðandi. Hin 16 ára gamla Sikkerninnguaq Lorentzen stóð uppi sem sigurvegari með 6 vinninga af 7, en öll börnin voru sigurvegarar og öll fengu þau glaðning frá bakhjörlum okkar.
Í eldri flokki sigraði svo unga glæsimennið Paulus Napatoq, sem varð tvítugur á dögunum. Hann er blindur en lærði skák í fyrstu heimsókn okkar hingað og hefur síðan sýnt ótrúleg tilþrif á skákborðinu.
Veðrið leikur við okkur hér í norðrinu: Hér eru sólin og lífsgleðin í aðalhlutverkum.
Skákhátíðin mikla heldur áfram á morgun!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 3. apríl 2012
Færsluflokkar
Spurt er
Tenglar
Grænlandsvinir
- Kalak Vinafélag Íslands og Grænlands
- Flugfélag Íslands Taktu flugið
- Penninn Styður starf Hróksins og félaga á Grænlandi!
- Íslenskt grænmeti Styður starf Hróksins og félaga á Grænlandi
- Henson Laaangflottastur!
- Bónus
- Cintamani Flottar flíkur í fimbulkulda
- Sögur útgáfa
- Actavis Hagur í heilsu
- Ísspor Verðlaunagripir
- Atlantsolía
- Fjallið Hvíta
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar