Leita í fréttum mbl.is

16 ára stúlka sigraði á stórmóti Pennans-Eymundsson og Ísspors

17 Enn einn dásamlegur dagur á Grænlandi. Við heimsóttum grunnskólann í morgun og fórum yfir undirstöðuatriði skáklistarinnar -- en þess gerðist varla þörf, því eftir fimm ára starf á 70. breiddargráðu eru öll börnin í ísbjarnarbænum með jafnvel hin fínustu blæbrigði skáklistarinnar á hreinu.

Seinnipartinn var svo efnt til sannkallaðs stórmóts, með tilstyrk Pennans-Eymundsson og Ísspors. 50 börn á grunnskólaaldri tefldu og leikgleðin var allsráðandi. Hin 16 ára gamla Sikkerninnguaq Lorentzen stóð uppi sem sigurvegari með 6 vinninga af 7, en öll börnin voru sigurvegarar og öll fengu þau glaðning frá bakhjörlum okkar.

11Í eldri flokki sigraði svo unga glæsimennið Paulus Napatoq, sem varð tvítugur á dögunum. Hann er blindur en lærði skák í fyrstu heimsókn okkar hingað og hefur síðan sýnt ótrúleg tilþrif á skákborðinu.

Veðrið leikur við okkur hér í norðrinu: Hér eru sólin og lífsgleðin í aðalhlutverkum.

 Skákhátíðin mikla heldur áfram á morgun!

 Myndaveisla dagsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hann er alveg magnaður hann Paulus, algjör fyrirmynd, flott viðtal í síðdegisútvarpinu sl. mánudag Hrafn, www.godurgranni.blog.is er fyrsta síðan sem ég les á morgnanna með sterkum kaffi, og að rúlla yfir myndirnar er eins og að fara á listasýningu, þið eruð langflottastir, skáktrúboðar Hróksins, kær kveðja og GENS UNA SUMUS, DON ROBERTO.

Róbert Lagerman (IP-tala skráð) 4.4.2012 kl. 09:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Leiðangursmenn

,,Við erum ein fjölskylda"
,,Við erum ein fjölskylda"

Fréttir af landnámi skákarinnar og starfi Hróksins og Kalak á Grænlandi.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband