2.4.2007 | 21:40
Glimrandi móttökur!
Já, það má með sanni segja að móttökurnar hafi verið ótrúlegar hér í norðrinu! krakkarnir hafa ekki getað beðið eftir að við kæmum að kenna þeim. "hvenær komiði í sjötta bekk, hvenær komiði í sjötta bekk?" Kona ein á förnum vegi réðist á okkur og sagði okkur hafa blásið börnunum gríðarlegan innblástur í brjóst, og þó nokkuð af fullorðna fólkinu hefur verið að spyrja hvort að það sé í lagi að þau fái að læra með börnunum. Við fréttum af því að örvænting hefði gripið um sig meðal framþjáðra, yfir því að menn væru jú í vinnunni þegar allur hasarinn væri! Við brugðumst að sjálfsögðu við af okkar alkunnu snilld og vorum fljót að skipuleggja kvöldkúrsa fyrir fullorðna. ALLIR SJÚKIR Í SKÁK Í SKORESBYSUNDI!!!
ÓK
Færsluflokkar
Spurt er
Tenglar
Grænlandsvinir
- Kalak Vinafélag Íslands og Grænlands
- Flugfélag Íslands Taktu flugið
- Penninn Styður starf Hróksins og félaga á Grænlandi!
- Íslenskt grænmeti Styður starf Hróksins og félaga á Grænlandi
- Henson Laaangflottastur!
- Bónus
- Cintamani Flottar flíkur í fimbulkulda
- Sögur útgáfa
- Actavis Hagur í heilsu
- Ísspor Verðlaunagripir
- Atlantsolía
- Fjallið Hvíta
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 1572
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvað er að vera framþjáður?
Guðmundur Rúnar Árnason (IP-tala skráð) 2.4.2007 kl. 21:48
framþjáðir menn í þúsund löndum, sem þekkja skortsins glímutök... osfv. verkalýðsleiðtoginn ætti nú að þekkja kenningu hins vinnandi manns!
okolbeinn (IP-tala skráð) 2.4.2007 kl. 23:57
ekki fram, thjadir! framthjadir!
okolbeinn (IP-tala skráð) 3.4.2007 kl. 17:29
Þú segir nokkuð. Ég hélt að það væri verið að hvetja þjáða menn til að sækja fram - semsagt: Fram þjáðir ... og svo framvegis.! Ég verð trúlega að fletta þessu upp.
Ég hélt að framþjáður maður væri sá sem ætti við einhverja slæmsku að etja framan á sér - væri t.d. illt í framsettum maga, eða eitthvað þaðanaf verra. Væri semsagt þjáður framan á sér.
Guðmundur Rúnar Árnason (IP-tala skráð) 3.4.2007 kl. 21:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.