Leita í fréttum mbl.is

Kuldalegt á leiđ til Kuummiit

Kristinn Pétursson skrifar frá Kuummiit. 

Í ísnumŢađ var lagt af stađ til Kuummiit upp úr hadegi á sunnudag, međ viđkomu í Kulusuk til ađ taka föggur túlksins okkar, hennar Nauju. Aldeilis fín blíđa, en ylgja í sjóinn sem framkallađi netta sjóveiki hja einhverjum farţeganna (ţó ekki langsjóuđum skákkennaranum!)

Eftir stutt stopp i Kulusuk var lagt af stad upp til Kuummiut. Nu brá  hinsvegar viđ ađ brostid var á međ snjókomu í viđbót viđ rökkriđ, ţannig ađ óvönum í grćnlenskum innanskerjasiglingum ţótti nóg um, en til allrar lukku og stórblessunar var kapteinn skútunnar enginn annar en hinn víđfrćgi Ísmađur eda Ismanden, som han hedder her i byggda.

Nú tók viđ hartnćr 3 tíma sigling í myrkri og snjókomu milli blindskerja og bođa, og stundi bloggarinn svolítiđ inn í sig af feginleik thegar ljósin i Kummiiuut birtust eins og sannkölluđ jólaljós í myrkrinu. Aldrei bregst hún skipstjórnin hans Sigurđar Péturssonar Ísmanns. 

Á mánudagsmorgun var síđan fariđ í skólann og skipulag dagsins skođađ međ Mikkel skólastjóra, Nauju túlk og síđan uppdagađist í skólanum ađ einn nýbyrjađur kennari hafđi langa reynslu af skákkennslu fra Taasiilaq, og var hann ţví samstundis sjanghćjađur í liđiđ. 

Seinnipartinn hófst síđan kennsla eftir skólatíma og stóđ framundir kvöldmat. Okkur var tekiđ međ kostum og kynjum, og kom strax í ljós ađ flestir nemendurnir bjuggu vel ađ fyrri kennslu Hróksmanna, ţví lítiđ ţurfti ađ tefja sig á manngangskennslu, en hćgt ađ vinda sér beint í alvörumál. 

Allt gekk ţetta vel og međ börnin, undir styrkri stjórn Nauju var lítiđ mál fyrir bloggarann og hinn grćnlenska skákkennara Anders ađ miđla vísdóminum. Á morgun verđur haldiđ áfram á fullum dampi.

Kveđja frá Kuummiit,

Kristinn.  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Leiðangursmenn

,,Við erum ein fjölskylda"
,,Við erum ein fjölskylda"

Fréttir af landnámi skákarinnar og starfi Hróksins og Kalak á Grænlandi.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband