6.4.2013 | 23:51
Jokiba Napatoq
Þessi mynd er tekin um páskana árið 2008 þegar fjórir leiðangursmenn Hróksins og Kalaks voru í leiðangri númer tvö í Ittoqqortoormiit. Róbert Lagerman tefldi fjöltefli við krakkana, sem ekki voru vel að sér í skáklistinni, flest hver. Enda var fyrsta ferðin 2007 og þá kunnu verulega fáir mannganginn. Hún Jokiba Napatoq var afar áhugasöm og var með í öllum viðburðum og þó hún væri aðeins sex ára þá reyndi hún sitt besta. Hún barðist lengi og vel við hann Róbert í fjölteflinu og þó staðan væri, eins og sjá má, nokkru lakari hjá svörtu köllunum, þá bauð Róbert jafntefli sem Jokiba þáði umsvifalaust enda páskaegg í boði fyrir þau sem ekki töpuðu fyrir meistaranum.
Jokiba kom með móður sinni, henni Ellen, sem reyndar hefur verið stoð og stytta leiðangursmanna að undanförnu, í skemmtiferð til Reykjavíkur sl sumar. Frændi hennar var með í för og þau kíktu við á skákæfingu hjá Skákakademíu Reykjavíkur einn mánudag í góða veðrinu. Þau frændsystkin áttu nokkuð í land með að halda í við krakkana sem stunduðu grimmt æfingar en fannst mikið til koma og nutu sín alveg í botn.
Hér má sjá Jokibu að tafli við afmælisbarn dagsins, laugardaginn 30. mars sl, hann Martin Hammeken. Hann var uppstrílaður að hætti afmælisbarna, og var kallaður upp á svið til að taka við afmælisgjöf frá leiðangursmönnum. Brosið líður seint úr minni. Jokiba neytti allra bragða til að tefla við vini og kunningja milli móta í páskaskákvikunni, en þurfti að finna einhverja sem áttu skákborð og kalla.
Ellen, móðir hennar, sem eins og áður sagði var stoð og stytta skáktrúboðanna og meðal annars mætti í skólann til að smyrja ofan í þá brauð, eins og sjá má hér:
..tjáði semsagt piltunum að Jokiba ætti ekki skáksett, hún hefði ekki fundið það í búðum þegar hún var á Íslandi sl sumar og ekki væri það nú til í kaupfélaginu í þorpinu. Þó ýmsu ægi nú saman þar, þá eru ekki reglulegar pantanir á dóti því skipið kemur bara á sumrin og þá er búðin fyllt af varningi sem á að duga fram á næsta sumar! Þannig er nú bara það og sumar vörur eru komnar hressilega yfir svokallaðan síðasta söludag, en það er ekki verið að stressa sig yfir því.
Jokiba fékk afhent skáksett eftir stutta æfingu í gistiheimilinu á staðnum, þar sem leiðangursmenn bjuggu við gott atlæti, og fór hún með það alsæl heim. Sat þar að tafli við vini og vinkonur fram á kvöld.
Niðurstaðan er sú að æfingin skapar meistarann. Vegna þess að...
eins og sjá má þá krækti Jokiba sér í sinn fyrsta verðlaunapening fyrir góðan árangur í skák á síðasta mótinu sem haldið var. Fékk hún fullan sundpoka frá Norlandair með ýmsu dóti í fyrir þátttökuna og svo páskaegg og glæsilega medalíu fyrir að komast í verðlaunasæti.
Sjaldan hafa sést stoltari mæðgur en eftir þetta mót.
Stelpan var varla búin að loka á eftir sér útidyrahurðinni heima hjá sér þegar þessi mynd birtist á facebook:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2013 | 20:46
Glöðu andlitin
Það er einstaklega gefandi að vera innan um svona skemmtilega krakka. Það voru bókstaflega allir glaðir, alltaf. Ef ekki sást bros þá var það vegna þess að þau voru svo niðursokkin í skákina að ekkert annað komst að.
Eins og til dæmis hEr:
Þeir Gaba og Jerimias voru duglegir að kíkja við á gistiheimilinu hjá leiðangursmönnum og þiggja smá veitingar. Og tefla eina eða tvær skákir. Þeir mættu að sjálfögðu alltaf í skólann þegar skákin átti að fara að byrja. Og það sem var svo skemmtilegt að þeir brostu út í eitt. Alltaf.
Eins og sjá má hér:
Gudrun og Emilie hafa verið bestu vinkonur í mörg ár. Sennilega frá því að þær voru pínkupons. Þær hafa sennilega mætt á alla skákviðburði síðan páskana 2007 þegar fyrsta ferðin var farin.
Stelpurnar mættu manna fyrstar og hjálpuðu til að setja upp borð og stóla, stilla upp taflmönnum og Emilie sá um að þýða yfir á grænlensku og pikka öll nöfnin í tölvu. Svo setti hún inn úrslitin og paraði fyrir næstu umferð og síðasta mótinu stjórnaði hún nánast upp á sitt einsdæmi. Afhenti svo öllum þátttakendum vinninga sína á Norlandair mótinu. Það var mikið að gera hjá stelpunni þá svo ekki náði hún verðlaunasæti en hún náði þó öðru sæti í yngri flokki á móti númer tvö. Þessar tvær bera nafnbótina Snillingur, með stóru essi.
Daniel D. Madsen er bróðir Emilie og sonur húsvarðarins í skólanum, hans Jens Kristian Madsen. Jens og kona hans eiga sex börn og fimm þeirra hafa verið með í skákinni ár eftir ár. Ken er elstur og hann er í framhaldsskóla á vesturströndinni. Systir hans í skóla í Nuuk og sá yngsti stendur varla fram úr hnefa ennþá, en verður með næst. Daniel varð 11 ára þann 2. apríl, daginn sem leiðangursmenn settust á sleðann hjá pabba hans sem skutlaði þeim yfir gaddfreðið Scoresbysundið að Constable Pynt, hinum nokkuð einmanalega alþjóðaflugvelli á ísbjarnarslóðum. Daníel átti stórleik og sigraði á Bónusmótinu í yngri flokki og var aldeilis ekki ósáttur. Hann virðist reyndar aldrei neitt sérlega ósáttur..
Þarna til vinstri er hún Laila, en hún er einmitt systir þeirra Emilie og Daniels. Laila er mikill gleðigjafi og sýnir miklar framfarir í skákinni, þó ekki hafi hún náð á pall. Laila er orkubolti og alltaf í góðu skapi. Hér er hún með litla frænda sér við hlið, hann var líka með þeim allra sprækustu.
Hún Cecilie er hér sposk með glænýja skákbók á grænlensku. Öll börnin fengu þessa bók að gjöf sem mun væntanlega hjálpa þeim að ná enn betri árangri. Það var skákkennarinn og eðalmennið hann Siguringi Sigurjónsson sem setti saman bókina og fékk styrk til að láta þýða á grænlensku. Það gerði ung kona sem býr í Kópavogi og var lengi að vinna á alþjóðaflugvellinum Constable Pynt. Verulegur akkurí þessari bók. Þess má geta að Cecilie prýddi forsíðu sunnudagsblaðs Moggans stuttu eftir páskana 2011, svona ljómandi krúttleg við skákborðið. Þá mynd tók Tim Vollmer sem var hirðljósmyndari ferðarinnar fyrir tveimur árum.
Þarf nokkuð að segja meira? Á þessu borði var sko aðalstuðið. Hér er unga fólkið í rífandi fíling. Alveg tjúlluðu stuði...
Nei, þarf ekki að segja meira.... Nema kannski það að:
Þó að aðalmálið sé að vera með þá er ótrúlega gaman að vinna. Alveg bilað gaman.
Allan Madsen vann tvisvar og var stoltari en allt sem stolt er.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.4.2013 | 00:53
Leiðangursmenn
Þeir fjórir, skáktrúboðarnir, sem voru svo heppnir að fá að heimsækja hið magnaða Ittoqqortoormiit við Scoresbysund nú um páskana, hafa allir ferðast með Hróknum/Kalak áður vestur um haf.
Hrafn Jökulsson er forseti Hróksins og upphafsmaður þess að kynna Grænlendinga fyrir skákgyðjunni. Nú er hafið 11. starfsár Hróksins á Grænlandi en fyrsta ferðin var til Qaqartoq árið 2003 en síðan hafa öll þorpin á austurströndinni verið heimsótt. Hrafn hefur farið ótal ferðir vestur um haf, oftast til Tasiilaq þar sem bækistöðvar hafa verið og þaðan farið til litlu þorpanna í kring.
Í desember sl. fór Hrafn ásamt stórmeistaranum Henrik Danielsen til Nuuk og stendur til, með tíð og tíma, að vinna í útbreiðslu skákarinnar á vesturströndinni. Þó einbeita liðsmenn Hróksins og Kalak sér að þeirri eystri sem stendur, enda þurfa börnin þar á félagslegum áskorunum að halda og upplifa gefandi samveru.
Róbert Lagerman, Fide meistari og yfirkennari ferðarinnar. Róbert er varaforseti Hróksins og hokinn af reynslu i skákkennslu barna. Hann á margar Grænlandsferðir að baki og stjórnaði mótum af öryggi en naut aðstoðar Emilie Madsen, þrettán ára skákdrottningar sem lærði mikið af herra Lageraman og getur vafalaust stjórnað stórmótum sjálf í nánustu framtíð.
Jón Birgir Einarsson, hinn öflugi liðsmaður. Má titla sem rótara leiðangursins og ekki verra að maðurinn er menntaður sem sálfræðingur sem og félagsfræðingur. Það hjálpar bæði íbúum hins einangraða Ittoqqortoormiit sem og leiðangursmönnum..
Jón hefur endalausa þolinmæði við að leiðbeina yngri kynslóðinni og hoppar í skákstjórn þess á milli. Hér er hann - fremur svalur - á leið yfir á Tóbínhöfða í ísbjarnarleit.
Arnar Valgeirsson á að baki um tólf ferðir í skákleiðöngrum á austurströnd Grænlands. Hann hefur verið leiðangursstjóri frá upphafi ferða til Ittoqqortoormiit og þekkir sig orðið nokkuð vel þar á bæ. Arnari fellur ágætlega að leiðbeina börnum sem stíga sín fyrstu skref í skákfræðum, sem og að setja upp mót en meistaradrauma er hann hættur að elta, enda væntanlega fjórði besti skákmaður leiðangursins. Eins og svo margir sem koma til landsins kolféll Arnar fyrir því og uppáhaldsstaður hans er Ittoqqortoormiit eða "staður hinna stóru húsa" við Scoresbysund.
Milli vinnutarna fékk Arnar að fara út og leika sér á sleða.
Já, og svona lítur bærinn út, séð í vestur út frá "miðbænum". Þetta er ægifagur bær. Gott fólk og ótrúlega hressir krakkar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2013 | 16:44
Bónusmótid gengur frábærlega.
Paulus Napatoq, hinn tvítugi blindi snillingur, vann skákmótid í gær og fékk bikar, páskaegg og fleiri vinninga fyrir sigur i eldri flokki. Allan Pike Madsen sigradi í yngri flokki og var leystur út med svipudum gjøfum. Reyndar fá øll børnin vinninga sem gerir thetta svo skemmtilegt, í Ittoqqortoormiit er enginn sem tapar, allir eru sigurvegarar.
Thátttakendur í gær voru vel á fimmta tug og ørlítid fleiri í dag. Børnin í 9. og 10. bekk eru í Nuuk svo yngri árgangarnir fá ad njóta sín heldur betur.
Nú stendur yfir páskaeggjamót Bónus og verda øll børnin leyst út med páskaeggjum, og thad er sko heldur betur stud á mannskapnum. Thad er frábært ad sjá foreldra fjølmenna í skólann hér í dag med myndavélarnar og gledjast med børnunum. Sumir foreldrarnir skrádu sig bara til leiks og hér stendur yfir glæsileg fjølskylduhátíd.
Á morgun verdur tekid hlé enda páskadagur, en alla adra daga, á medan heimsókn Hróksins og Kalak, er teflt sem enginn sé morgundagurinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2013 | 16:40
Fyrsta mótid i gangi
Ferdalangarnir fjorir mættu til Ittoqqortoormiit upp ur hadeginu a midvikudaginn eftir fint flug med Norlandair og tveggja tima snjosledaferd i bysna erfidu færi yfir helfrosid Scoresbysund.
En adalmalid er ad skákin gengur frábærlega. Róbert og Jón Birgir tefldu fjøltefli vid 40 krakka í gær og gekk thad eins og í søgu. Jón fékk á baukinn í fleiri en einni vidureign og ung stúlka gerdi jafntefli vid meistarann Róbert. Páskaeggjunum sem fengust fyrir ad tapa ekki var fagnad grídarlega undir háværu lófaklappi.
Nú thegar thetta er skrifad i tølvu í einni skólastofunni, stendur yfir fyrsta mótid og thad er svo sannarlega stud. Ríflega 40 børn og nokkrir eldri berjast vid bordin og er aldurinn frá fimm ára upp í 34. Actavis og Penninn gefa vinningana á mótinu og Ísspor bikara og verdlaunapeninga. En fjøldi fyrirtækja styrkti Hrókinn og Kalak med vinningum svo í øllum mótunum fá allir vinninga, hér er thad enginn sem tapar.
Fyrsta skákbókin sem kemur út á grænlensku var med i før og øll børnin fengu hana ad gjøf í gær. Sá ötuli skáktrúboði Siguringi Sigurjónsson tók upp hjá sjálfum sér að búa til prentunar kennslubók á grænlensku í skák, og fékk til þess styrk frá Flugfélagi Íslands og Ístaki. Það var ógleymanleg stund í skólanum hér í dag þegar fyrstu eintökin voru afhent.
Knud Eliassen skólastjóri mætir galvaskur í skólann til ad vera til adstodar og hin 14 ára Emilie Madsen er sérstakur adstodarmadur vid innslátt og utanumhald. Verdur hún sérstaklega heidrud í mótslok.
Á morgun er thad páskaeggjamótid en Bónus gefur øllum børnunum páskaegg sem gjørsamlega slá í gegn. Skáktrúbodum Hróksins og Kalak er tekid med kostum og kynjum og hefur verid bodit í tvígang í mat hjá heidurshjónum Jaerus Arqe og Nikolinu Napatoq sem eiga sex børn sem tefla af kappi. Saudnautssúpan smakkadist med eindæmum vel og selur med sinnepi var hressilegur hádegisverdur á føstudeginum langa. Thetta eru miklir snillingar sem hér búa.
Hér má sjá umfjøllun um fyrsta daginn: http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/graenlendingar-lita-a-islendinga-sem-sina-nanustu-og-bestu-vini
Arnar, Jón Birgir, Róbert og Hrafn bidja ad heilsa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2013 | 14:23
Páskaferðin að hefjast
Þá er komið að því að ferðalangarnir fjórir haldi til Akureyrar þar sem flogið verður með Norlandair í fyrramálið til Constable Pynt og verða þeir sóttir þangað á vélsleðum.
35 km eru yfir í Ittoqqortoormiit við Scoresbysund og við hlökkum til að hitta aftur þessa frábæru krakka sem gleðjast með okkur alla páskana.
Gens una sumus - við erum ein fjölskylda!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2013 | 23:01
Páskar 2013 í Ittoqqortoormiit
Á miðvikudaginn halda fjórir leiðangursmenn á vegum Kalaks, vinafélags Grænlands og Íslands, og Hróksins til Ittoqqortoormiit við Scoresbysund.
Yfir páskana verður þar haldin skákhátíð og búast má við að öll þau nær hundrað börn sem í grunnskólanum eru muni flykkjast í skólann sinn í páskafríinu, enda er ekki mikið um að vera í einu afskekktasta þorpi á norðurslóðum. Þarna á 70° breiddar búa um 460 manns og eru um 900 km í næsta þorp, sem er Kulusuk í suðri. Talsvert styttra er til Íslands.
Frá árinu 2007 hefur leiðangur verið sendur á þessar slóðir og hefur skákin slegið eftirminnilega í gegna hjá börnunum í Itto. Knud Eliassen, skólastjóri, hefur prentað út dagskrá páskahelgarinnar fyrir skólabörnin svo nú geta allir planað fríið út í ystu æsar.
Sermersooq kommune styrkir leiðangurinn með ferðastyrk og Norlandair á Akureyri kemur veglega til móts við skáktrúboðana sem hvarvetna njóta mikillar velvildar.
Bónus gefur öllum grunnskólabörnunum páskaegg á páskaeggjamótinu og Actavis, Penninn, Stilling ehf, Sögur-útgáfa, 66°norður, Nói-Síríus og Arion banki gefa vinninga en öll börnin fá vinninga í öllum mótunum. Það eru klárlega allir sigurvegarar og áskorunin mun efla þessa mögnuðu krakka.
Ísspor gefur alla bikara og verðlaunapeninga sem fyrr og Sölufélag garðyrkjumanna nestar piltana hressilega upp.
Róbert Lagerman, Hrafn Jökulsson, Jón Birgir Einarsson og leiðangursstjórinn Arnar Valgeirsson, allir með reynslu af skákstarfinu á Grænlandi, munu halda í þessa ævintýraferð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2012 | 11:29
Carsten Egevang
Þær Gudrun og Emilie voru alltaf með, og alltaf þvílíkt hressar
Þegar skáktrúboðarnir í Ittoqqortoormiit voru með fjöltefli í ferð sinni, og þeir Hrafn og Stefán deildu á milli sín 99 skákum þar sem hvor tefldi við ríflega tuttugu í einu, mættu tveir danskir félagar með svakalegar myndavélar með enn svakalegri linsum á svæðið. Fyrir þeim fór Carsten Egevang sem þykir einn allra besti arctic ljósmyndari sem finnst og við nánari könnun var fullyrt að hann væri sá besti - á eftir RAX!
Hrafn þarf að vanda sig þegar hann leikur næsta leik gegn Sikki Lorentzen, en hún vann tvö mótanna
Þeir félagar mynduðu uppákomuna en voru strax morguninn eftir á leið í veiðimannakofa í 40 km fjarlægð, semsagt lengst úti á ísnum þar sem Carsten hélt ljósmyndasýningu. Það reyndist ómögulegt fyrir ferðalangana að kíkja á sýninguna, enda bæði langt, kallt og vont færi svo vitað var að snjósleðarnir myndu hoppa og skoppa meirihluta leiðarinnar.
Stefán Bergsson er greinilega í ham í fjölteflinu
Átta manns á fjórum sleðum mættu þó á sýningu Carstens sem var himinlifandi með góða aðsókn. Þeir félagar voru svo samferða Hróks- og Kalakmönnum yfir hafið til Íslands.
Þær fjórar myndir sem fylgja þessari færslu tók Carsten Egevang. Fleiri myndir hans, greinar úr ferðinni og greinar um Grænland yfirleitt má finna á vefsíðu vinafélags Íslands og Grænlands, kalak.is
Carsten er með ljósmyndasíður:
www.carstenegevang.com
og www.arc-pic.com
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2012 | 00:07
Frá mínus tuttugu í plús fimmtíu og sex!
Um leið og Hrókurinn og Kalak þakka þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem gerðu það að veruleika að öll börnin í Ittoqqortoormiit fengu vinninga á hverju einasta móti sem haldið var vikuna fyrir páska er ekki úr vegi að birta nokkrar myndir úr þessari mögnuðu ferð.
Það er aldeilis heldur ekki úr vegi að þakka Fritids og kulturráði Sermersooq bæjarfélagsins, sem og Nuna fonden innilega fyrir höfðinglega styrki sem gerðu það yfirleitt að verkum að hægt var að leggja í þessa velheppnuðu ferð.
Ferðalangar fóru í ansi magnaða ferð í Kap Tobin, eða Tóbínhöfða eins og það var kallað í veðurfréttatímunum áður fyrr. Þar má finna heita lind, 56°C þar sem fólk á það til að baða sig og hugsanlega hefur þessi moskuxi borið þar beinin. Þó má kannski leiða að því líkum að einhverjir hafi tyllt kúpunni á stein eftir ríkulega kvöldmáltíð!
Eins og sjá má hefur heldur betur gengið á með éljum í vetur. Ruðningarnir voru tvær til þrjár mannhæðir og í sumum húsum var engin þörf fyrir gardínur.
Það er engu líkara en þessir birnir góli í frostinu en á meðan á dvöl leiðangursmanna stóð var veðrið að mestu leyti frábært, sól og nánast stilla fyrstu dagana en um 15°C í mínus. Fór upp í mínus tuttugu og þá var nokkuð kallt. Í lokin var ekki eins fallegt veður en minna frost, kannsku um mínus fimm. Þessir birnir höfðu eitthvað verið að spóka sig um á sundinu en enginn veit ævina fyrr en öll er!
Nokkra bíla mátti sjá á kafi við hús en snjósleða eða fjórhjól mátti sjá við hvert hús, svona nánast. Hér sést sleðahundur passa upp á farartæki eiganda síns sem virðist tilbúið til ferðalags út á sundið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2012 | 18:28
Afmælisbarn dagsins
... er hann Jens Ravnskjær, skólastjóri grunnskólans í Ittoqqortoormiit. Það má segja að Jens hafi verið lykilmaður í að koma leiðangrinum þarna uppeftir, en umsóknir um styrki, húsnæði og allt sem þurfti fór í gegn um hann.
Tekið var á móti leiðangursmönnum með kostum og kynjum þar sem boðið var upp á sauðnaut og með því strax fyrsta daginn. Veislumatur var endurgoldinn með íslenskum lambalærum - þremur stykkjum - og glænýju grænmeti. Glænýtt grænmeti er ekki beinlínis í boði í hverjum degi.
Fyrir framan pabba sinn er hann Skjöld sem var aldrei kallað annað en Skjöldur, vinstra megin á mynd er skólastjórafrúin, hún Kirsten Lumbye Ravnskjær. Við hennar hlið er kennarinn hún Anette Lassen, þá Jón Birgir Einarsson, Stefán Bergsson, Lisbet Dönvang og Christian sem kom frá Tasiilaq, einmitt þennan dag, til að aðstoða í skólanum.
Jens er nú staddur á námskeið i Nuuk.
Til hamingju með afmælið Jens.
Tillykke!
Innuinni Pidduari!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Spurt er
Tenglar
Grænlandsvinir
- Kalak Vinafélag Íslands og Grænlands
- Flugfélag Íslands Taktu flugið
- Penninn Styður starf Hróksins og félaga á Grænlandi!
- Íslenskt grænmeti Styður starf Hróksins og félaga á Grænlandi
- Henson Laaangflottastur!
- Bónus
- Cintamani Flottar flíkur í fimbulkulda
- Sögur útgáfa
- Actavis Hagur í heilsu
- Ísspor Verðlaunagripir
- Atlantsolía
- Fjallið Hvíta
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar