Færsluflokkur: Bloggar
10.8.2008 | 18:02
Landsleikur í fótbolta
Eftir að sendinefnd Hróksins hafði teflt við börn og fullorðna i samkomuhúsinu í Tasiilaq og hópur farið í íþróttahöllina að undirbúa stórmótið sem fram fer seinna í dag, var keppt í fótbolta, Ísland - Grænland.
andsleikurinn var haldinn á hinum glæsilega malarvelli ofarlega í bænum og voru tólf í hvoru liði og varamenn alltaf til í að hlaupa inná þegar þreytan sagði til sín, hjá báðum liðum.
Þess má geta að einn Spánverji var með í íslenska landsliðinu, Jorge Rodrigez Foncega, og stóð hann sig með sóma aftarlega á miðjunni.
Eftir smá barning náðu Hróksmenn yfirhöndinni og komust í þrjú eitt, með mörkum þeirra Hákons Svavarssonar, sjálfsmarki þeirra grænlensku og skallamarki Atla Arnarssonar.
Staðan var 3-2 í hálfleik en Grænlendingarnir skoruðu þrjú í röð og það var með naumindum sem Íslendingarnir náðu að jafna með mörkum þeirra Þórarins Sigurðssonar og Styrmis Sigurðssonar, ísmanns.
Leikurinn fór í framlengingu og Styrmir bætti við marki en ungur piltur frá Tasiilaq vippaði yfir hinn tæplega tveggja metra langa Róbert Harðarson, markmann, á lokamínútunum.
Það kallaði á vítaspyrnukeppni þar sem sigur hafðist, þar sem Styrmir fór í markið og varði tvær spyrnur.
Þórarinn, Styrmir og Pétur Atli Lárusson skoruðu úr vítunum en Hákon Svavarsson, sem hafði stjórnað miðjuspili liðsins af röggsemi allan leikinn, klikkaði illa á vítaspyrnu sinni, sem kom þó ekki að sök. Hörkuleikur og ekkert gefið eftir.
Væntanlega verður heldur ekkert gefið eftir á Greenland Open, til heiðurs Sigurði Péturssyni sextugum, í Tasiilaq í dag.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.8.2008 | 19:29
Fjögur skákmót á tveimur dögum
Skákstarfsemin fór rólega af stað í Kulusuk eins og áður sagði. Þó var byrjað ad tefla þar strax á sunnudeginum og siðan var teflt allt fram á miðvikudag þegar barnaskákmótin fóru fram. Stofnað var skákfélag í Kulusuk og var það gert með stuðningi skákfélagsins úr Háskólanum í Reykjavík sem hafði séð um skákkennsluna í Kulusuk árið áður. Félagið hlaut nafnið Pisittartorq eða Riddarinn og er skólastjóri bæjarins, Lars-Peter Stirling, formaður þess. Miðvikudaginn 6. ágúst voru síðan haldin barnaskákmót í öllum bæjunum þremur. Tugir krakka tóku þátt í mótunum.
Þeir sem lentu í efsta sæti á mótinu í Tasiilaq voru Dines Ingnatiussen í 1. sæti, Jens Mathæussen í 2. sæti og í 3.-4. sæti urðu Simujoog Taunajik og Jukom Brandt. Brosbolir styrktu mótið.
Sigurvegari á Kuummiut-mótinu var Sakæus Kalia, annar varð Barajare Uitsatikitseq og þriðja varð Anna Manikutdlak. Landsbankinn styrkti það mót.
Hörð keppni var á mótinu í Kulusuk. Eftir mótið voru jöfn í efsta sæti Mikael Kunak og Antia Poulsen eftir að hafa unnið alla andstæðinga sína en gert jafntefli hvort gegn öðru. Tefla varð úrslitaskák milli þeirra og hafði Mikael þá betur. Olga Mikaelsen varð i þriðja sæti. Kaupþing styrkti þetta mót.
7. ágúst í blíðskaparveðri héldu Kátir biskupar og Hróksmenn í Kulusuk til Tasiilaq í báti Sigurðar Péturssonar ísmanns, Þyt. Það kvöld héldu Hrókurinn og skákfélagið í Tasiilaq, Løberen (biskupinn), skákmót fyrir alla aldurshópa. Á mótinu varð Einar K. Einarsson efstur og í öðru sæti var Gunnar Freyr Rúnarsson. Þeir unnu allar sínar skákir og gerðu jafntefli innbyrðis en Einar var hærri á stigum. Efstur Grænlendinga á mótinu og í 3. til 4. sæti var Ulrik Utuaq med sex vinninga af sjö. Ulla Kuitse varð efst kvenna. Vinningar voru frá Smekkleysu, Henson og Sandholtsbakaríi.
Á mótinu var Harald Bianco gerður að þrettánda heiðursfélaga Hróksins. Harald er bæjarráðsmaður í Tasiilaq og hefur verið helsta stoð og stytta Hróksmanna í skáklandnámi þeirra í Tasiilaq. Meðal fyrri heiðursmanna Hróksins má nefna rokkdrottninguna Patti Smith.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.8.2008 | 12:50
Allt að komast á fullt skrid hja sendinefndinni
Það var fallegur dagur í Tasiilaq i dag og félagsheimilið opnaði klukkan eitt með því að leiðangursmenn tóku nokkrar bröndóttar við krakkana. Farið var yfir nokkur atriði og svo tefldi spænski skákræðingur sendinefndarinnar, Jorge Rodrigez F
oncega, fjöltefli við á þriðja tug barna og unglinga. Þrír náðu jafntefli og fengu verðlaun fyrir vikið.
Heldur rólega hafa skákæfingar farið af stað í Kulusuk, en vegna sviplegs fráfalls ungs pilts þar um helgina hefur sendinefnd Hróksins þar ekki farið geyst. Þó hefur þónokkur fjöldi kíkt við í skólanum og teflt en skákborð hafa verið sett upp bæði innan- sem utandyra.
Barnaskákmót hefur verið auglýst um allan bæ, sem fram fer á morgun klukkan 15:00, KB bankamótið. Bros mótið verður haldið í Tasiilaq á sama tíma og Landsbankamótið í Kuummiut, en tveir Kátir biskupar komust til Kulusuk í dag, þar sem flugi var aflýst í gær vegna þoku, sem og restin af farangri leiðangursins.
Héldu þeir rakleiðis til Kuummiut þar sem Kátir hafnfirskir biskupar settu upp mikla skákhátíð um leið og þeir hoppuðu í land.
Á fimmtudaginn koma svo þeir sem staddir eru í Kulusuk og Kuummiut yfir til Tasiilaq, og auk þess nokkrir frá Reykjavík. Stórmót verður sett upp um kvöldið í samstarfi við skákfélagið Löberen biskupinn og vænst er góðrar þátttöku, enda þurfa allir að hita sig vel upp fyrir Greenland open á laugardag, sem haldið er til heiðurs Sigurði Péturssyni, ísmanni, sem verður sextugur í haust.
En í millitíðinni hefur verið auglýstur landsleikur i fótbolta, Grænland Ísland, á hinum rómaða malarvelli í Tasiilaq, sem einmitt liggur beint fyrir framan Lionshúsið þar sem leiðangursmenn gista. Spurning hverjir verða á heimavelli...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.8.2008 | 23:07
Fjöltefli í bongóblíðu á austurströndinni
Fjöltefli í bongóblíðu á austurströndinni
Það hefur farið vel um leiðangursmenn Hróksins í blíðunni í Tasiilaq og Kulusuk.
Í dag, mánudag, hófst veislan og samkomuhúsið í Tasiilaq opnaði klukkan 13:00 og börnin kepptust við að setja upp borð og stóla og skora á Íslendingana þegar settin voru komin á sinn stað. Róbert Lagerman tefldi svo fjöltefli við 25 krakka við mikla hamingju, ekki síst hjá þeim þremur sem náðu jafntefli við meistarann. Fengu þeir Hróksnælu í barminn og lyklakippu að auki.
Róbert hafði reyndar verið bitinn rækilega af moskítóflugum hér í dalnum í gær, þar sem leiðangursmenn renndu fyrir silung, og stokkbólginn fór hann á sjúkrahúsið í bænum þar sem meistarinn var sprautaður og lyfjaður í bak og fyrir. Var skákhandleggurinn tvöfaldur og læknirinn sagði honum að tefla ekki á næstunni. En fjölteflið hafði verið auglýst og ekki mátti klikka á því.
Í Kulusuk eru fimm vaskir sveinar sem bíða eftir tveimur í viðbót svo hægt sé að setja upp hátíð bæði í Kulusuk og Kuummiut, en flugi var aflýst í dag. Er það fremur afleitt þar sem slatta af farangri vantar, varð hann eftir í Reykjavík en berst vonandi sem fyrst.
Teflt var utandyra í Kulusuk enda hefur veðurblíðan verið með eindæmum.
Fyrsti dagur hefur því gengið vel og er unga fólkið að draga vini og vinkonur með að æfa sig, enda verða barnamót í Kulusuk, Kuummiut og Tasiilaq á miðvikudag kl. 15:00 að grænlenskum tíma. Má reikna með að aldrei áður hafi jafn margir setið að tafli sem á næsta miðvikudag á Grænlandi öllu.
En meira um það síðar...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.7.2008 | 23:56
Hátíðir í þremur þorpum og afmælismót Sigurðar Ísmanns
Hrókurinn á Grænlandi sjötta árið í röð:
Dagana 3. til 11. ágúst verður haldin skákhátíð fyrir börn og fullorðna í þremur þorpum á Austur-Grænlandi. Hápunkturinn verður VI. alþjóðlega Grænlandsmótið sem fram fer í íþróttahöllinni í Tasiilaq. Skákfélagið Hrókurinn skipuleggur hátíðina í samvinnu við Káta biskupa og Kalak, með stuðningi Flugfélags Íslands og fleiri aðila.
Hátíðin nær til þorpanna Kulusuk, Kuummiut og Tasiilaq, og á dagskránni verður skákkennsla, fjöltefli, barnaskákmót og fleiri viðburðir. Liðsmenn Kátra biskupa úr Hafnarfirði annast hátíðahöld í Kuummiut, og vaskar sveitir verða einnig í Kulusuk og Tasiilaq.
Þetta er sjötta árið í röð sem Hrókurinn heldur skákhátíð á Grænlandi og 15. leiðangurinn sem farinn er. Liðsmenn Hróksins hafa heimsótt á annan tug þorpa og bæja, kennt í grunnskólum, haldið námskeið, fjöltefli og skákmót. Rúmlega þúsund grænlensk börn hafa fengið skáksett að gjöf.
VI. alþjóðlega Grænlandsmótið verður jafnframt afmælismót Sigurðar Péturssonar, sem hefur viðurnefnið Ísmaðurinn. Sigurður, sem er sextugur á árinu, býr í Kuummiit og hefur verið ómissandi hjálparhella við starfið á Grænlandi.
Meðal þeirra sem leggja sitt af mörkum, svo skákhátíðin nú heppnist sem best eru: Henson Sports hf, Borgarleikhúsið, Bros-Gjafaver ehf, veitingastaðurinn Steak and play, KB banki, Keilir Keflavíkurflugvelli, verslunin 2001, Smekkleysa, Hafnarfjarðarbær, Landsbankinn, Ó.Johnson & Kaaber og Flugfélag Íslands.
Bloggar | Breytt 1.8.2008 kl. 15:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.7.2008 | 20:13
Fjórði ágúst
Þá er aðeins mánuður þangað til Hrókurinn sendir leiðangur í þrettánda sinn til Grænlands. Ekki þarf að kynna skákgyðjuna fyrir íbúum Ammassaliq svæðisins en að sjálfsögðu er bæði gott og gaman að hitta þetta magnaða fólk aftur og halda úti smá veislum við skákborðið.
Þau hjá skákfélaginu Löberen eða Biskupinn i Tasiilaq gleðjast að sjálfsögðu jafnan við komu hinna íslensku sendinefnda og alltaf bætast við fleiri börn, nú líka fullorðnir, við hóp skákiðkenda við hverja heimsókn.
Ferðin verður semsagt frá mánudeginum 4. ágúst til þess 11. þegar heim verður komið. Undirbúningur er hafinn og einhverjir munu dveljast í Kulusuk fyrstu dagana, í góðu yfirlæti hjá skólastjóranum Lars Peter Stirling, hinum mikla snillingi. Börnin þar verða algjörlega himinlifandi við tilbreytinguna og eru ótrúlega dugleg og áhugasöm.
Að sama skapi munu hinir Kátu Biskupar úr Hafnarfirðinum, undir styrkri forystu Þórðar Sveinssonar, halda til Kuummiut og halda uppi fjörinu þar fyrstu dagana. Þar er náttúrufegurðin mögnuð og Sigurður Pétursson, ísmaðurinn, hefur verið hin mesta hjálparhella þar um slóðir enda búsettur í þorpinu.
Í Tasiilaq, stærsta bæ Austurstrandarinnar verða liðsmenn að sjálfsögðu allan tímann og öll hersingin hittist svo þar fimmtudaginn 7. ágúst og verður skákhátíð þar alla þá helgina. Forystuhlutverki í þeim bæ gegnir Stefán Herbertsson, fyrrum formaður Kalak, vínafélags Íslands og Grænlands, enda þekkir hann þar hverja þúfu og flesta bæjarbúa einnig.
Ekki er alveg loku fyrir það skotið að boðið verði upp á tónlistarveislu af bestu gerð þar á bæ.
Árið 2003 fór fyrsti leiðangur Hróksins til Suður Grænlands en síðan þá hefur verið farið ellefu sinnum til Austurstrandarinnar.
Benda má á síðuna http://hatid2008.blog.is/blog/hatid2008/ þar sem Grænlandsfarar ásamt fleiri skákáhugamönnum sameinuðust í minningarmóti um Pál Gunnarsson, einn af þeim sem hófu ferðir þessar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2008 | 01:38
aðeins yfir farinn veg... nokkrar myndir og þakkir til styrktaraðila
Börnin í Ittoqqortoormiit svo sannarlega glöð með Glitni.
Þegar master Andri ljósmyndari tekur tvöþúsund myndir í leiðangri er auðvitað nauðsynlegt að koma einhverjum á framfæri.
Næsta ferð verður farin, eins og fram hefur komið, þann fjórða ágúst nk. Svo leiðangursfólk Hróksins komist þessar ferðir, þar sem markmiðið er að gera líf barnanna á austurströnd Grænlands örlítið innihaldsríkara, auk þess sem samskipti landanna eru bætt verulega, er nauðsynlegt að fá stuðning frá fyrirtækjum. Í ferðinni um páskana voru það Klæðning ehf, Glitnir, Húsasmiðjan, Henson, Borgarleikhúsið og Góa sem gerðu Hróksfólki kleyft að fara þessa ferð og færa börnunum góðar gjafir auk þess að ávallt fengu allir þátttakendur vinninga.
Allir vinna, enginn tapar og gleðin skín úr ungum og frísklegum andlitunum.
Ungir og eldri með á Húsasmiðjumótinu...
Leiðangursmenn þakka þann stuðning sem sýndur var og gerði þetta ævintýri að veruleika, ævintýri fyrir hina íslensku sendinefnd, og ekki síður fyrir íbúa hins einangraða Ittoqqortoormiit, þar sem 530 manns búa og ferðast ekki mikið því einn vegur liggur um bæinn og nær ekki lengra en upp á þyrlupall. 50 km ferð með þyrlu er nauðsynleg á Nerleriit Inaat, einn minnsta alþjóðaflugvöll í heimi og svo eru "aðeins" 800 km í næsta bæ sem er Kulusuk. Reyndar styttra að fara á Þingeyri....
en að ævintýri hafi þetta verið má svo sannarlega sjá á síðu grunnskólans í þorpinu.
Tasiilaq (Ammassalik), Kuummiut og Kulusuk verður sinnt í sumar. Eins vel og mögulegt er.
Svo að síðustu má hér sjá þetta magnaða þorp þar sem Andri náði þessari ótrúlega fínu mynd. Þessi vetur hefur svo sannarlega verið snjóaveturinn mikli á Grænlandi, sérstaklega á austurströndinni og sá mesti á þessum slóðum í 37 ár. Hetjur sem búa þarna.
Bara að klikka á hana og sjá alla dýrðina.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2008 | 20:32
óviðjafnanlegt land, óviðjafnanlegir bæir, óviðjafnanlegt fólk, óviðjafnanleg hamingja
Þessa mynd tók Andri Thorstensen í Ittoqqortoormiit nú í mars. það var slatta snjór þarna ha. Takið eftir að það er smá hola þarna í skaflinum. Andri tók líka myndina sem kemur hér á eftir.....
Leiðangursmenn sem fóru í umrætt þorp hittust yfir kaffibolla og tekinn var púlsinn á næstu ferð, þar sem Tasiilaq, Kulusuk og Kuummiut verða heimsótt.
Planið er að u.þ.b. fjórir verði í Kulusuk, þrír í Kuummiut og 5-6 í Tasiilaq til að byrja með. Svo hittist öll hersingin í Tasiilaq fyrir helgina þegar Greenland Open verður haldið með pompi og prakt.
Væntanlega munu allnokkrir koma á fimmtudegi og vera fram á mánudag, þann ellefta ágúst, þegar grunnskólinn hefst. Það er semsagt byrjað að plana, panta gistingu og annað sem krefst mikils undirbúnings þannig að þeir sem upplifað hafa stemninguna, landið og þetta gefandi starf ættu að láta í sér heyra því það er aldeilis ekki ótakmarkað pláss. Nú, og þeir sem ekki hafa þessu kynnst, en vilja láta hendur standa fram úr ermum og tefla við hressa grænlenska krakka, vita þá af þessu líka. Kostnaði verður reynt að halda niðri eftir megni, fyrir vinnusama.
Og, áður en það gleymist:
Holan þarna í skaflinum var auðvitað til þess að....................
..... komast inn. Nú eða út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2008 | 17:52
4. ágúst, 2008
Þessa flottu mynd af henni Önnu í Kulusuk, besta trommudansara austurstrandar Grænlands, tók hinn mikli meistari Lars-Peter Stirling, skólastjóri í Kulusuk.
Hann hefur verið Hróknum innan handar í ferðum undanfarinna ára og komið með börnunum frá minni byggðum austurstrandarinnar tvö sl. haust, þegar þau koma í boði Hróksins og Kalak, vinafélags Íslands og Grænlands, búa í Kópavogi og ganga þar í skóla í 12 daga.
Þau tefla að sjálfsögðu og fara í ýmsa leiðangra en þau læra að synda, skella sér í laugina tvisvar á dag, takk fyrir. Aðeins er ein sundlaug á Grænlandi og hún er í Nuuk, höfuðborginni á vesturströndinni.
Næsti leiðangur Hróksins hefur verið ákveðinn 4. - 11. ágúst. Þá mun sendinefnd dvelja í Kummiut, Kulusuk og Tasiilaq. Greenland Open verður svo haldið helgina 9.-12. ágúst í Tasiilaq.
Skákfélagið Löberen, eða Biskupinn, í Tasiilaq, er algjörlega í startholunum með að taka á móti Hróksfólki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2008 | 00:44
Litið um öxl - og fram á veginn
Ferð hinnar fjögurra manna sendinefndar Hróksins til Ittoqqortoormiit tókst með afburðum vel. Ekki verður annað séð en að þetta nyrsta byggða ból austurstrandar Grænlands sé orðið magnaðasti skákbær norðurheimskautsins.
Í það minnsta eru ekki mörg skákfélög starfandi mikið norðar en þarna við Scoresbysundið, en Tårnet (Hrókurinn), fagnar einmitt eins árs afmæli sínu um þessar mundir og stöndum við í þeirri trú að virk starfsemi verði hjá félaginu næstu mánuði og ár. Peter von Staffeldt, skólastjóri grunnskólans á staðnum og kona hans hún Ulla, helstu hjálparhellur Hróksmanna í ferð þessari, voru heilluð af þátttöku barnanna - sem reyndar komin voru í páskafrí og í skólanum verður teflt á næstunni, það er deginum ljósara.
Ekki nóg með það, þá eignaðist skákfélagið Hrókurinn heiðursfélaga númer 12, sjálfan formanninn í Tårnet, Knud Eliassen, sem hélt öruggum höndum um þrjú skákmót í samvinnu við Hróksmenn og var nánast þrjá daga í páskafríinu sínu í skólanum, þar sem hann einmitt kennir.
Knud var heiðraður sérstaklega og tekinn í hóp heiðursfélaga, þar sem fyrir eru m.a: Össur Skarphéðinsson, Jóhannes í Bónus, Patty Smith, tónlistarhetja, Árni Höskuldsson, gullsmiður og fleira gott fólk, ekki síst hann Paulus Napatoq, heiðursfélagi númer ellefu. Titilinn hlaut hann í fyrra þegar hann, þá fimmtán ára og blindur, lærði mannganginn á örskömmum tíma og byrjaði að tefla sem ekkert væri.
Paulus gerði sér lítið fyrir og varð annar í fyrsta mótinu, Glitnismótinu, tók þátt í því öðru, Húsasmiðjumótinu, en kom of seint og náði því ekki á pall. Hann hinsvegar stóð uppi sem sigurvegari, með fimm vinninga af fimm mögulegum, í fjölmennasta skákmóti sem haldið hefur verið á 70. breiddargráðu, Klæðningarmótinu. Klæðning ehf. styrkti ferð Hróksins fjárhagslega og ríflega sextíu manns tóku þátt í mótinu.
Veðrið skartaði sínu fegursta þegar sendinefndin mætti á svæðið, nánast logn, sólin eitthvað að glenna sig og ellefu stiga frost. Vetrarhörkurnar hafa verið ógurlegar þennan veturinn og talað var um að ekki hafi snjóað svo mikið og svo lengi síðan 1971. Fólk hefur verið fast innandyra svo dögum skiptir í vetur og húsin bókstaflega farið á bólakaf.
Ferðalangar upplifðu eitthvað nýtt, dag eftir dag: Þyrluferðirnar, vélsleðaferð með veltu, allur þessi ótrúlegi snjór og matarveislurnar, ekki síst hjá skólastjórahjónunum þar sem boðið var upp á ísbjarnarkjöt, sel, náhvalshúð og spik, þurrkaða loðnu og moskuxa. Að fá að upplifa þetta magnaða þorp þar sem styttra er til Íslands en í næsta bæ og það frábæra fólk sem þarna býr.
Hundasleðaferðin á ísbjarnaslóðir, með Paulusi hinum blinda og bróður hans Josef yfir í veiðimannaþorpið Kap Tobin er eitthvað sem aldrei gleymist. Þegar Paulus birtist með riffilinn á bakinu varð ferðalöngum á orði að þeir væru ekki lunknir að fara með riffil. Paulus sagði það í góðu lagi því hann kynni alveg á hann. Og hefur reyndar þurft að nota, þegar hann einn á ferð með hundunum sínum mætti ísbirni langt frá mannabyggð.
En að næstum fjórðungur íbúa bæjarins hafi komið og fengið að kynnast skákgyðjunni og þar af ríflega helmingur barnanna í hinu einangraða Ittoqqortoormiit er langstærsta upplifunin og gefur svo sannarlega fögur fyrirheit.
Veðurfarið var glimrandi fínt í heila viku, stundum svolítið kallt, upp í mínus 20, og þegar Hróksmenn bjuggust til brottfarar skall á með þvílíkum hríðarbyl að ekki var hundi út sigandi. Sem kannski er ekki rétt því þeir tugir ef ekki hundruðir hunda sem þarna eru, koma ekki inn fyrir húsdyr mestan hluta ævinnar, eru úti hvernig sem viðrar, allan ársins hring.
Þannig að heimferðin tafðist aðeins.
Þetta var tólfta ferð Hróksins til Grænlands og hefur austurströndinni verið sérstaklega sinnt, þar sem þar eru félagsleg vandamál meiri en annarsstaðar og fátækt veruleg víða. Lítið er um að vera fyrir börnin en þau hafa svo sannarlega tekið skákinni fagnandi og nú eru tvö skákfélög starfandi þar, Löberen eða biskupinn í Tasiilaq á Ammassaliqsvæðinu og Tårnet í Ittoqqortoormiit.
Þegar Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins, fékk þá flugu í haus að færa skákina til Grænlands, þar sem hún hafði legið í dvala í mörg hundruð ár, hefur varla nokkrum dottið í hug það starf sem farið hefur þarna fram undanfarin ár. Kalak, vinafélag Íslands og Grænlands hefur svo komið að Grænlandsferðunum hin síðari ár og samskipti landanna eflst til mikilla muna, m.a. hafa hátt í fimmtíu börn, á tólfta ári, komið í tveimur ferðum til Íslands, gengið í skóla í Kópavogi í rúmlega viku og lært að synda.
Einstaklingar og fyrirtæki hafa stutt dyggilega við starf Hróksins undanfarin ár. Klæðning styrkti ferð þessa og Glitnir Borgarleikhúsið Henson og Húsasmiðjan sáu til þess að allir þátttakendur fengju vinninga auk þess sem Góa gaf grunnskólabörnunum páskaegg, en ríflega hundrað stykki voru með í för.Flugfélag Íslands hefur verið Hróknum ótrúleg hjálparhella frá upphafi.
Sendinefndina skipuðu að þessu sinni þeir: Róbert Harðarsson, Þórður Sveinsson, Arnar Valgeirsson og Andri Thorstensen sem tók ekki bara þessar myndir hér, heldur á þriðja þúsund til viðbótar....
Fram til sigurs.
AV
Endilega klikkaðu á myndirnar og sjáðu þær stórar.

Róbert Harðarson, Fide meistari, tefldi fjöltefli við fimmtíu manns á sunnudegi. Sendinefnd Hróksins fékk skólann til afnota í páskafríi nemenda (og kennara) og ekki vantaði heimsóknargesti.
Börnin voru svo sannarlega glöð með Glitni á Glitnismótinu, klædd í boli og í rífandi stuði.
Bloggar | Breytt 26.3.2008 kl. 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
Spurt er
Tenglar
Grænlandsvinir
- Kalak Vinafélag Íslands og Grænlands
- Flugfélag Íslands Taktu flugið
- Penninn Styður starf Hróksins og félaga á Grænlandi!
- Íslenskt grænmeti Styður starf Hróksins og félaga á Grænlandi
- Henson Laaangflottastur!
- Bónus
- Cintamani Flottar flíkur í fimbulkulda
- Sögur útgáfa
- Actavis Hagur í heilsu
- Ísspor Verðlaunagripir
- Atlantsolía
- Fjallið Hvíta
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar