Færsluflokkur: Bloggar
20.3.2008 | 14:28
Mikill fögnuður
Sendinefnd Hróksins hér í Ittoqqortoormiit hefur hvergi slegið slöku við. Á mánudaginn voru haldin tvö skákmót eins og áður hefur verið greint frá. Í fyrradag var ekki heldur setið auðum höndum og voru leiðangursmenn með opið hús í grunnskólanum frá klukkan tvö. Klukkan þrjú tefldi Róbert Harðarson með bundið fyrir augu við Paulus Napatoq sem náði framan af að verjast sóknum Róberts. Að lokum fór þó svo að Paulus tapaði skákinni en það var líka eina skákin sem hann tapaði þennan dag; klukkan fimm var haldið fjölsótt skákmót þar sem hann stóð uppi sem sigurvegari.
Þetta skákmót var haldið í skólanum eins og fyrri mót og var veglega styrkt af Klæðningu, sem og Glitni, Borgarleikhúsinu, Góu og Húsasmiðjunni sem gáfu ýmsa vinninga. Mótið var ætlað öllum aldurshópum og mættu ríflega 100 manns en þátttakendur voru hátt í 70 talsins. Knud Eliassen, formaður skákfélagsins í Ittoqqortoormiit – sem heitir einmitt Tårnet eða Hrókurinn – aðstoðaði við alla framkvæmd mótsins en hann hefur verið ómetanlegur í skákstarfi Hróksins hér í þorpinu.
Eins og fyrr segir varð Paulus Napatoq efstur á mótinu en það má teljast góður árangur hjá þessum blinda pilti. Í verðlaun fékk hann bikar, verðlaunapening, skáktölvu og páskaegg frá Góu. Í öðru sæti varð Lars Simonsen og í því þriðja Aqqalu Brønlund. Hlutu þeir hvor um sig verðlaunapening, skáksett og páskaegg. Af kvenkyns þátttakendum fékk Sikkerninnguaq Lorentzen flesta vinninga en þess má geta að hún varð í öðru sæti á barnaskákmótinu sem haldið var í fyrradag. Í verðlaun fékk hún páskaegg og eðalskáksett. Þegar úrslit voru tilkynnt fögnuðu allir viðstaddir gríðarlega. Og að sama skapi var vel fagnað þegar Knud Eliassen var vígður til tólfta heiðursfélaga Hróksins.
Mikill fögnuður var raunar mjög einkennandi fyrir mótið og mátti sjá gleðina skína úr augum keppenda og þá sérstaklega barnanna en þau voru í talsverðum meirihluta. Þau þekkja orðið alla leiðangursmenn með nafni og sjái þau einhvern þeirra á vappi um þorpið koma þau umsvifalaust aðvífandi og heilsa honum með handabandi. Eitt þykir þeim mjög fyndið en það er að nafn Arnars leiðangursstjóra er skrifað alveg eins og orðið kona á grænlensku, það er arnar.
Gaman að því. Og gott ef það er ekki bara gaman líka að vera veðurtepptur hér í Ittoqqortoormiit en leiðangursmenn komust ekki heim í fyrradag eins og upphaflega var ætlunin. Þá var slæmt veður framan af og seint um kvöldið skall á ofsarok með snjókomu og skafrenningi. En leiðangursmenn létu ekkert stöðva sig og um morguninn héldu þeir á fund sveitarstjórnar sem þeir höfðu verið boðaðir á klukkan tíu. Í ráðhúsinu komust þeir að því að fundurinn hefði fallið niður vegna veðursins. Otto Christensen, fjármálastjóri sveitarfélagsins, var þó í ráðhúsinu og ræddi við leiðangursmenn í nokkra stund. Tók hann við forláta skáksetti fyrir hönd sveitarfélagsins en leysti gestina einnig út með góðum gjöfum.
Má segja að viðræðurnar við Otto hafi verið lokahnykkurinn í störfum leiðangursmanna að þessu sinni en síðar meir mun Hrókurinn vitaskuld senda hingað sendinefnd að nýju. Nú er þess hins vegar beðið að unnt verði að fljúga heim en það er ekki hægt í dag enda leiðindaveður.
Hlýjar kveðjur úr hríðarbyl við Scoresbysund,
Þórður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2008 | 14:07
Skákmót á skákmót ofan – Illar veðurhorfur
Í dag hefur sendisveit Hróksins hér í Ittoqqortoormiit hvergi látið deigan síga fremur en fyrri daginn. Klukkan tvö í dag var haldið skákmót í grunnskóla þorpsins veglega styrkt af Glitni fyrir börn sextán ára og yngri og mættu hátt í fimmtíu.
Asser Sanimuinaq varð hlutskarpastur en í öðru sæti varð Sikkerninnguaq Lorentzen sem um leið var efst stúlkna. Í þriðja sæti varð Paulus Napatoq blindi pilturinn sem ekur um allt á hundasleða eins og ekkert sé. Og í fjórða sæti varð Julian Anike.
Öll hlutu þau vegleg verðlaun og má þar nefna forláta bikar fyrir fyrsta sætið, verðlaunapeninga, skáktölvur fyrir fyrsta og annað sætið og páskaegg frá sælgætisgerðinni Góu. Fengu raunar allir þátttakendur páskaegg.
Að móti loknu buðu skólastjórahjónin, þau Peter og Ulla, leiðangursmönnum í mat. Á borðum var ísbjörn, selkjöt, náhvalsspik og náhvalshúð, þurrkuð loðna (amassa) og moskuxakjöt. Þetta var mikill herramannsmatur sem bráðnaði í munni.
Að loknum mat var spjallað við skólastjórahjónin yfir kaffibolla í dálitla stund en síðan urðu Grænlandsfarar að halda aftur upp í skóla. Komið var að öðru móti, að þessu sinni fyrir 12 ára og eldri sem styrkt var myndarlega af Húsasmiðjunni.
Alls mættu um fimmtíu manns. Arne Munk aðstoðarskólastjóri fór með sigur af hólmi en í öðru sæti varð Ikila Brønlund. Í þriðja sæti varð bróðir hans, Aqqalu. Hlutskörpust kvenna varð Ivi Lorentzen en hún er einmitt systir áðurnefndrar Sikkerninnguaq. Sem fyrr voru veitt vegleg verðlaun og má þar nefna páskaegg frá Góu, verðlaunapeninga og bikar fyrir fyrsta sætið, auk skákborðs áritaðs af sjálfum Garrí Kasparov.
Á morgun verður haldið enn eitt skákmótið og gefst öllum aldurshópum kostur á að taka þátt í því. Fyrirhugað er að halda heim til Íslands degi síðar, það er á miðvikudag, en ekki er víst að það hafist.
Veðurspáin er víst ekki með betra móti fyrir miðvikudaginn en gert er ráð fyrir 20 metrum á sekúndu, snjókomu og skafrenningi. Miðað við allan snjóinn hér við Scoresbysund má ætla að verulega blint verði í slíku veðri en leiðangursmenn krossa bara fingur. Kannski gengur spáin ekki eftir en gangi hún eftir nú, þá verður bara að bíða fram á laugardag.
Þá er búist við björtu veðri og brakandi frosti. Í slíku veðri er ekkert mál að fljúga. En ef allt klikkar þá er það nú kannski ekkert svo slæmt. Það er jú margt verra en að vera á Grænlandi.
Kærar kveðjur frá hjara veraldar,
Þórður
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.3.2008 | 12:35
Glitnismót og Húsasmiðjumót
Meðan krónan er í frjálsu falli á Íslandi er ótrúlegur uppgangur i skákinni i Scoresbysundi, einsog sjá má á seinasta pistli.
Klukkan tvö í dag er Glitnismótið en Glitnir gefur fullt af fínum vinningum. Einnig fá öll börnin páskaegg frá Góu, væntanlega við mikinn fögnuð!
Í kvöld er mót fyrir 12 ára og eldri, Húsasmiðjumótið.
Væntanlega verður þetta langur og skemmtilegur dagur en í pásu milli mótanna býður skólastjórinn upp á grænlenskan hátíðarverð, med ýmsum framandi réttum.
Við bíðum spenntir...
Bloggar | Breytt 18.3.2008 kl. 19:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2008 | 18:47
Fjöltefli á ísbjarnaslóðum
Opið hús var í grunnskólanum í Ittoqqortoormiit í dag, sunnudag, og mættu hátt í sjötíu manns. Gríðarlegur áhugi skein úr augum barnanna, og reyndar þeirra fullorðnu líka, og var þegar hafist handa við taflmennskuna.
Þegar allir voru orðnir heitir tefldi skákmeistari ferðarinnar, Róbert Harðarson, fjöltefli við rúmlega 50 manns, mest börn og unglinga en þónokkra fullorðna einnig.
Upphafsskákin var við skólastjóra grunnskólans og hjálparhellu Hróksmanna, Peter von Staffeldt, sem finnst mikið koma til starfs Hróksins á Grænlandi.
Peter gaf reyndar þegar hann var kominn í töluverð vandræði en flestir börðust fram í rauðan dauðann, nema þeir sem náðu jöfnu við meistarann með glæsilegri frammistöðu. Sú fyrsta var hún Gudrun litla, vinkona okkar frá í fyrra, 7 ára gömul.
Alls náðu 8 jöfnu við Róbert, að vísu þrjú lítil börn en aðrir vegna flottrar frammistöðu. Þeirra á meðal var Paulus Napatoq, hinn sextán ára blindi snillingur sem mun tefla blindskák á morgun við Róbert.
Paulus fór með ferðalanga í 15 km og þriggja tíma hundasleðaferð í gær út á Kap Tobin, þar sem veiðimenn hafa bækistöð, í ótrúlega góðu veðri þar sem kuldinn reyndar beit nokkuð. Ísbirnir hafa nokkuð verið að gera fólki lífið leitt á þessari leið undanförnu en Paulus var með riffil með.
Þegar íslenskir skákmenn sögðust lítið kunna að fara með svoleiðis sagði hann það í lagi því hann kynni á riffilinn sjálfur! Sérstakur aðstoðarnaður í ferðinni var litli bróðir hans, Jósef sem er 12 ára.
Skákhátíðin hófst auðvitað með kennslu í skólanum tvo síðustu dagana fyrir páskafrí, en byrjaði með látum í dag og tvö mót verða haldin á morgun og eitt á þriðjudag. Kennsla var einnig í félagsheimili unglinganna á föstudeginum, Umimmak eða Moskuxanum, en skólastjórahjónin buðu einmitt upp á moskuxasteik strax fyrsta kvöld Hróksmanna í bænum.
Hafa þau boðið upp á grænlenskan hátíðarverð á morgun þar sem selur og loðna koma við sögu, ásamt ísbjarnarkjöti, svo tilhlökkunin er mikil.
Allur aðbúnaður er til mikillar fyrirmyndar, ferðalangar hafa yfir heilu húsi að ráða sem er reyndar yst í bænum, þar sem einn ísbjörn gekk um fyrir stuttu og bauð sér í heimsókn í bæinn. Hinir islensku ferdalangar treysta á að hundarnir, sem eru nánast um allan bæ, láti vita sé önnur heimsókn fyrirhuguð.
Formaður skákfélagsins Tårnet i Ittoqqortoormiit, Knud Eliassen, hefur verið öflugur við allt utanumhald og mun stjórna skákmótum á morgun og hinn. Þýðir hann yfir á grænlensku fyrir litlu börnin og er ómissandi við skákstarfið hér.
Skákin hefur gjörsamlega tekið yfir í bænum og allir eru með sælusvip.
Fram til sigurs!
Arnar.
Bloggar | Breytt 18.3.2008 kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2008 | 14:43
Skákveisla í uppsiglingu
Börnin í grunnskólanum í Ittoqqortoormiit bíða spennt eftir að sunnudagurinn renni upp. Ekki bara af því að þau verða komin í páskafrí heldur líka af því að þá hefst skákhátíðin formlega en opið hús verður í skólanum frá klukkan 14. Massív kennsla verður, auk þess sem skákmeistarinn meðal ferðalanga (þó hinir þrír kynni sig sem sjení líka), Róbert Harðarson, ætlar að taka fjöltefli við alla sem láta sjá sig.
Farið var í gegnum grunnatriði skáklistarinnar í nokkrum bekkjum í gær og í dag verður því fram haldið, auk þess sem félagsmiðstöð ungmennanna hér, Umimaq eða moskuxinn, verður heimsótt, og riddarar og drottningar kynntar til sögunnar, auk hróksins auðvitað en skákfélagið á staðnum heitir einmitt Tårnet, eða Hrókurinn. Félagið var stofnað fyrir réttu ári síðan, og er ætlunin ad virkja þad enn frekar. Þó eru margir sem tefla heima hjá sér og börnin eru æst í að vera með. Margir krakkar, sem og fullorðnir, eignuðust sett í fyrra auk þess sem skilin voru eftir yfir tuttugu skáksett í skólanum.
Það hefur ekki verið svo mikill snjór í bænum síðan 1970, fólk þarf að byrja á að moka af þakinu til að gera svo göng að dyrunum. En allir eru glaðir því ferðalangar tóku sólina með sér á svæðið og heiðursfélagi Hróksins númer 11, hinn blindi Paulus Napatoq, ætlar að taka þátt í skákhátíðinni af fullum krafti.
Þess má geta að Þórður og Andri sýndu snilldartakta við innpökkun páskaeggja, þar sem aðeins sex egg af 140 brotnuðu í flutningunum. Enda fóðruð í dagblöð og búbbluplast. Páskaeggin eru gjöf frá sælgætisgerðinni Góu til barnanna í Ittoqqortoormiit og þeim verða gerð góð skil.
Fram til sigurs.
Arnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2008 | 14:36
Óviðjafnanlegur staður
Ittoqqoortormiit við Scoresbysund er óviðjafnanlegur staður og skartar nú sínu fegursta undir bjartri heimskautasólinni. Við komum hingað í fyrradag eftir magnaða þyrluferð frá alþjóðaflugvellinum í Nerlerit Inaat (Constable Pynt). Vart kæmi á óvart ef sá flugvöllur væri einangraðasti og minnsti alþjóðaflugvöllur í víðri veröld. Strax og við lentum urðum við varir við ógurleg snjóþyngsli og þau voru engu minni í Ittoqqoortormiit.
Snjórinn er að minnsta kosti þriggja metra djúpur og skaflarnir allt upp í fimm/sex metra þykkir. Mörg húsanna eru vart sjáanleg fyrir snjó. Dagana áður en við komum hafði líka verið hið versta veður. Ekki sást á milli húsa og börnin voru föst heima eins og skólastjórahjónin, þau Peter og Ulla, greindu okkur frá í fyrrakvöld. Þá fórum við í matarboð á heimili þeirra og báru hjónin fram dýrindis krásir grænlenskan lax og kjöt af sauðnauti.
Af þessu má sjá að við erum miklir aufúsugestir í þorpinu. Þau Arnar, Óli Kolbeinn og Íris vöktu auðsjáanlega mikla lukku hér í fyrra og allir vilja greiða götu okkar. Það fundum við í dag þegar við byrjuðum á skákkennslunni í grunnskólanum. Og á næstu dögum mun velvild þorpsbúa koma sér vel enda ætlum við okkur auk skákkennslunnar að standa fyrir þremur veglegum skákmótum og stóru fjöltefli þar sem börnin í grunnskólanum munu reyna að vinna Róbert Harðarson. Hann ætlar líka að tefla blindskák við Paulus blindan pilt sem fer um allt á hundasleða sem alsjáandi væri og lætur sjónleysið ekki aftra sér frá taflmennsku.
Og ekkert mun aftra okkur frá því að halda hér glæsilega og vel heppnaða skákhátíð. Slíkur er áhuginn í þorpinu að annað er óhugsandi.
Með heimskautakveðju,
Þórður
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2008 | 21:20
Hrókurinn á 70. breiddargráðu!
"Hér iðar allt af skáklífi. Krakkarnir eru himinlifandi og allir bæjarbúar hafa tekið okkur frábærlega," segir Róbert Harðarson, einn af leiðangursmönnum Hróksins í Ittoqqortoormit á Grænlandi.
Fjögurra manna vaskur hópur flaug frá Reykjavík á miðvikudag og verður næstu vikuna á 70. gráðu norðlægrar breiddar að útbreiða fagnaðarerindi skáklistarinnar.
Skákkennslan byrjaði í dag, fimmtudag, í skólanum í þessu 500 manna samfélagi sem er nyrsta byggð á austurströnd Grænlands.
Um 120 börn eru í skólanum og þau munu öll taka þátt í námskeiðum, fjölteflum og skákmótum á vegum Hróksmanna.
"Hér er 10 stiga frost núna og mesti snjór í manna minnum," segir Arnar Valgeirsson, leiðangursstjóri, sem hefur haft veg og vanda af skipulagningu leiðangursins. "Nú snýst allt um skák hérna og það mun bara aukast á næstu dögum!"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.3.2008 | 00:36
Á leið til Ittoqqortoormiit fyrir páska..
Þá er komið að því...
Þann 12. mars fer fjögurra manna hópur á vegum Hróksins til nyrsta byggða bóls Austurstrandar Grænlands, Scoresbysunds eða Ittoqqortoormit.
Í samvinnu við hið kornunga skákfélag á þessum ríflega 500 manna stað, Tårnet (Hrókurinn), verður skákkennsla í grunnskólanum á staðnum, auk þess sem í það minnsta þrjú skákmót verða haldin.
Fyrir réttu ári síðan fór þriggja manna leiðangur þarna norðureftir og tókst ferðin í alla staði vonum framar. Börnin tóku hinu íslenska skákfólki opnum örmum, enda ekki um margt að vera í páskafríinu þar sem staðurinn er mjög einangraður, 800 km í næsta bæ sem er kulusuk og ívið styttra að fara til Íslands.
Peter von Staffeldt, skólastjóri grunnskólans, hefur lofað að hafa skólann opinn fyrir skáklistina þó börnin verði komin í páskafrí og þeir Knud Eliasen, formaður Tårnet og Jörgen Thomsen, stjórnarmaður og sérlegur aðstoðarmaður Hróksmanna, eru farnir að undirbúa komu ferðalanganna.
Gustav Brandt, félagsmálafulltrúi bæjarins ætlar að sjá til þess að mótin gangi vel fyrir sig, bæði í skólanum og hinu nýja íþróttahúsi bæjarins, þar sem leiðangursmenn vonast til þess að hægt verði að halda glæsilegt mót á norðlægum slóðum, fyrir bæjarbúa alla.
Heiðursfélagi Hróksins númer ellefu, Paulus Napatoq, blindur fjórtán ára piltur, verður að sjálfsögðu heimsóttur, en hann lærði að tefla í fyrra. Drengurinn er algjör snillingur og fer sinna ferða á hundasleða á veturna en á hjóli á sumrin og lætur sjónleysi ekki aftra sér frá því að taka fullan þátt í lífinu í Ittoqqortoormiit.
Þetta er tólfta ferðin til Grænlands á vegum Hróksins, þar sem skákgyðjan er kynnt innfæddum og samstarf landanna styrkt. Fyrsta ferðin var fyrir fimm árum síðan og hefur Hrókurinn einbeitt sér að austurströndinni þar sem lífið er nokkru harðara fyrir innfædda auk þess sem félagsleg vandamál eru töluverð og atvinnuleysi umtalsvert.
Svona ferðir eru ekki mögulegar nema með hjálp góðs fólks og stuðnings fyrirtækja, en Klæðning ehf studdi ferðalanga glæsilega og Glitnir, Góa, Henson, Húsasmiðjan og Borgarleikhúsið sjá til þess að allir fái glæsilega vinninga, bikara og verðlaunapeninga. Má vænta ósvikinna brosa á litlum andlitum með páskaegg í hönd..
Leiðangursmenn að þessu sinni eru þeir Robert Lagerman, Þórður Sveinsson, Andri Thorstensen og Arnar Valgeirsson, en allir hafa þeir tekið þátt í Grænlandsverkefni Hróksins áður.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.8.2007 | 20:18
Kátir biskupar í Kuummiut
Fyrir skemmstu héldu Ketill Sigurðsson, Þórður Sveinsson, bræðurnir Hákon og Styrmir Svavarssynir og Snorri Guðbrandsson úr Kátu biskupunum til þorpsins Kuummiut á austurströnd Grænlands til að halda þar skákhátíð í grunnskólanum. Þetta var í annað sinn sem Kátu biskuparnir héldu til Kuummiut til að halda slíka hátíð, en í ágúst 2006 fóru þeir einnig þangað í sama skyni. Er ætlunin að gera þetta árlega og þá í tengslum við skákhátíð Hróksins í Tasiilaq, stærsta bænum á austurströnd Grænlands þar sem búa um 1.700 manns.
Lagt var í hann frá Reykjavíkurflugvelli þriðjudaginn 14. ágúst síðastliðinn og flogið til flugvallarins á eyjunni Kulusuk. Þegar þangað var komið var haldið rakleiðis til samnefnds þorps þar í grennd á pallbíl sem ferjaði bæði farangur biskupanna kátu og þá sjálfa. Í þorpinu búa ríflega 300 manns og hafði fríður hópur meðlima úr Skákíþróttafélagi stúdenta við Háskólann í Reykjavík komið þangað deginum áður til að halda þar skákhátíð svipaða þeirri í Kuummiut. Við bryggjuna í þorpinu beið Sigurður Pétursson ísmaður ásamt syni sínum á bátinum Þyt.
Á leið sinni til Kuummiut á báti ísmannsins dáðust Kátu biskuparnir að hinni hrikalegu náttúru Grænlands. Fjöllin eru snarbrött og oddhvöss og sléttlendi nánast ekki neitt. Víða eru jöklar í fjöllunum og snjóskafla má sjá niður við sjávarmál þótt komið sé langt fram á sumar. Gróður er af skornum skammti, en þó er sums staðar berjalyng og jafnvel grasfletir þar sem jarðvegur er nægur.
Þegar til Kuummiut var komið affermdu Kátu biskuparnir bátinn og ætluðu því næst að koma sér fyrir í þorpinu. Ísmaðurinn gekk eitthvað upp í þorpið og kom til baka innan tíðar ásamt konu sinni. Hann hafði ekki góðar fregnir að færa. Dauðsfall hafði orðið í fjölskyldu skólameistarans og sorg grúfði yfir þorpinu. Taldi hann ósennilegt af þessum sökum að unnt yrði að halda mótið en sagði Kátu biskupunum að þeir gætu svo sem reynt. Sáu þeir þann kost vænstan og tjáðu ísmanninum það. Sté hann þá um borð í bátinn ásamt konu sinni, leysti landfestar og mælti að skilnaði: Ég er farinn. Þið verðið eftir.
Því er ekki að neita að Kátu biskuparnir voru í nokkrum vafa um hvort þeim tækist það ætlunarverk sitt að halda skákhátíð í grunnskóla þorpsins. En þeir fóru engu að síður á stúfana og kom á daginn að skólinn taldi meira en sjálfsagt að halda hátíðina þrátt fyrir sorgina sem grúfði yfir bænum. Kom skólameistarinn að máli við leiðangursmenn og var boðinn og búinn til að vera þeim innan handar.
Var þá ekkert að vanbúnaði. Þar sem nokkuð var liðið á daginn var þó ekki unnt að hefja skákhátíðina strax, en þess í stað var farið í hús ísmannsins sem býr einmitt í Kuummiut. Hafði hann léð Kátu biskupunum lykilinn að húsinu svo að þeir gætu haft þar næturstað. Komu biskuparnir kátu sér þar fyrir og hófu að leggja drög að morgundeginum.
Nokkru eftir að skóla lauk þann dag héldu þeir sem leið lá í grunnskólann með skáksett og skákskýringatjald til að halda kennslustund í skák. Gekk kennslan með ágætum, en túlkur úr þorpinu að nafni Carl Christiansen túlkaði fyrir Kátu biskupana úr dönsku yfir á grænlensku. Urðu börnin margs vísari.
Næsta dag héldu Kátu biskuparnir skákmót í grunnskólanum sem var einkar vel sótt. Yfir 50 börn skráðu sig til þátttöku og voru tefldar fimm umferðir eftir Monrad-kerfi. Hlutskarpastur varð Sakæus Kalia, en í öðru sæti varð stúlka að nafni Debo Qatsa. Fengu þau bæði bikar frá Hróknum að launum, en Sakæus fékk einnig skáktölvu. Bent Pivat lenti í þriðja sæti og fékk hann verðlaunapening ásamt þeim Sakæusi og Debo. Þau tvö minnstu, sem þátt tóku í mótinu, fengu líka pening. Var þessum öllum fimm fagnað gríðarlega af barnaskaranum.
Nú var starfi Kátu biskupanna í þorpinu í raun lokið að öðru leyti en því að þeir áttu eftir að afhenda grunnskólanum minnislykla frá Glitni. Það gerðu þeir daginn eftir og hugðust því næst fá far með fragtaranum Jóhönnu Maríu til Tasiilaq. Aðeins tólf farþegar mega fara með skipinu og átta manns voru þegar búnir að kaupa sér miða. Það merkti að einn kátur biskup gat ekki komist með. Reynt var að semja um að allir fimm fengju far, en hvorki gekk né rak og í miðjum samningaviðræðum voru landfestar leystar og Kátu biskuparnir skildir eftir á bryggjunni. Tekið skal fram að þeir bera engan kala til skipshafnarinnar, enda var hér þeirra eigin fyrirhyggjuleysi um að kenna og í sjálfu sér lítið sem skipshöfnin gat gert. Reglur eru jú reglur.
En nú voru góð ráð dýr. Hvað skyldi til bragðs taka? Aðeins eitt var í stöðunni. Annaðhvort yrði einhver heimamaður fenginn til að skjótast með þá yfir til Tasiilaq eða Kátu biskuparnir yrðu að dvelja í Kuummiut nokkra daga í viðbót. Tekið skal fram að Kuummiut er mjög fallegur staður og þar væri vel hægt að hugsa sér að búa. En ekki var til setunnar boðið. Innan nokkurra daga áttu Kátu biskuparnir bókað flug frá Kulusuk til Reykjavíkur og þeir urðu því að komast til Tasiilaq fyrr en síðar þaðan sem ísmaðurinn myndi sigla með þá til Kulusuk.
Eftir nokkra stund tókst að fá mann til verksins gegn hóflegri greiðslu. Unglingspiltur var Kátu biskupunum mjög hjálplegur og hafði um þetta milligöngu. Var nú haldið af stað til Tasiilaq á litlum, óyfirbyggðum plastbáti með utanborðsmótor. Var þetta hin skemmtilegasta sigling.
Dvöldust Kátu biskuparnir nú í Tasiilaq í nokkra daga og tóku þátt í hinni glæsilegu skákhátíð Hróksins sem þar fór fram, en henni stýrðu þeir Hrafn Jökulsson skákfrömuður og Arnar Valgeirsson leiðangursstjóri Grænlandsfara styrkri hendi. Að skákhátíð Hróksins lokinni, eða hinn 21. ágúst, var haldið heim á leið, fyrst með báti ísmannsins til Kulusuk í nokkuð úfnum sjó og því næst með flugi til Reykjavíkur. Hafa Kátu biskuparnir fyllsta hug á að halda aftur til Grænlands, enda er þar fallegt um að litast og fólkið vingjarnlegt. Mættu fleiri Íslendingar leggja leið sína þangað.
Þórður Sveinsson
P.S. Myndir frá Kuummiut má sjá hér.
Bloggar | Breytt 24.8.2007 kl. 00:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.8.2007 | 23:05
Björn Þorfinnsson sigraði á V. Flugfélagsmóti Hróksins á Grænlandi
Björn Þorfinnsson er Grænlandsmeistarinn 2007. Þátttökumet. Jóhanna Björg með gull í tveimur flokkum. Sigurvegararnir gáfu verðlaunin sín.
Björn Þorfinnsson sigraði á 5. alþjóðamóti Hróksins á Grænlandi, Flugfélagsmótinu 2007, sem lauk í Tasiilaq á sunnudag. Gríðarlega góð þátttaka var á mótinu og keppendur alls 84, sem er met. Róbert Harðarson varð í 2. sæti og Hrannar Jónsson hreppti bronsið.
Alls voru veitt verðlaun í fjórum flokkum. Dines Ignatiussen hlaut gullið í flokki heimamanna, Gabe Taunajik hlaut silfrið og Karl Peter Ale brons.
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, sem í sumar varð heimsmeistari með sveit Salaskóla, sigraði bæði í kvennaflokki og ungmennaflokki. Í öðru sæti í ungmennaflokki varð Patrekur Maron Magnússon og Birkir Karl Sigurðsson varð þriðji. Embla Dís Ásgeirsdóttir hlaut silfrið í kvennaflokki og grænlenska stúlkan Fina Maratse varð þriðja.
Flugfélagsmótið fór fram í glæsilegri íþróttahöll í Tasiilaq og voru aðstæður einsog best gerist á alþjóðlegum skákmótum. Við verðlaunaafhendingu var mikill fögnuður, enda voru allir keppendur leystir út með glaðningi.
Sigurvegararnir voru í hátíðarskapi og vakti mikinn fögnuð þegar Jóhanna Björg gaf verðlaunin sem hún hlaut, forláta skáktölvu frá Pennanum, til eins af grænlensku keppendunum. Björn Þorfinnsson lét heldur ekki sitt eftir liggja, og gaf sigurlaunin, glæsilegan bikar frá Árna Höskuldssyni, til ungs og efnilegs grænlensks skákmanns.
Óhætt er að segja að skákhátíð Hróksins og félaga á Grænlandi 2007 hafi heppnast frábærlega. Grænlensk ungmenni hafa tekið skákinni tveim höndum og starf síðustu fimm ára er farið að skila verulegum árangri.
Alls tóku rúmlega 40 Íslendingar þátt í skákhátíðinni, sem náði til Tasiilaq, Kuummiit og Kulusuk.
Frábærri hátíð er lokið en skáklandnámið heldur áfram!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Spurt er
Tenglar
Grænlandsvinir
- Kalak Vinafélag Íslands og Grænlands
- Flugfélag Íslands Taktu flugið
- Penninn Styður starf Hróksins og félaga á Grænlandi!
- Íslenskt grænmeti Styður starf Hróksins og félaga á Grænlandi
- Henson Laaangflottastur!
- Bónus
- Cintamani Flottar flíkur í fimbulkulda
- Sögur útgáfa
- Actavis Hagur í heilsu
- Ísspor Verðlaunagripir
- Atlantsolía
- Fjallið Hvíta
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar