Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Bloggar

rostungur i hádeginu sko

 

Mótid var snilld, fimmtíu og fjórir og gekk ofsa vel. Aqqalu Brönlund hafdi thad en meira um á morgun. Myndir og svona. Jaerus var ad bjóda okkur í rostung í hádeginu á morgun og vid sögdum bara já takk...

Undirbúningur fyrir brottför hafinn.


Heimsókn

hressir í heimsókn

gaman ad fá svona hressa pilta í heimsókn. Komu til ad óska okkur gledilegra páska. Alveg milljón.


fimmtíuogfjórir

 

mia ađ klifra54 taka nú thátt i páskamóti númer tvö. mótid er nú i fullu blasti og Knud og Sverrir eru sveittir en ég stekk í tölvuna í skólanum. Bilad stud ad venju.

En hér er hún Mia litla, gledigjafinn mikli. Algjörlega eldhress og syngur fyrir okkur og dansar. Tekid í Kap Tobin.

 

Svo eru hérna líka tvö svolítid einmana hús einmitt frá sama stad.

Spád gódu vedri á morgun og vćntanlega flug. Thau verda allavega ánćgd sem hafa verid vedurteppt hér í viku......

 tvö í kap tobin

 


út um stofugluggann okkar

 

CIMG0002

tekid úr stofunni í gráu hřlinni okkar. ekki slćmt og bara bjútíful.


Páskamót Tĺrnet skakklub

 

CIMG0044Dagurinn í gćr var brilliant. Algjört Mćjorkaveđur og hátt í sextíu ţátttakendur á páskamóti númer eitt, en ţađ síđara er ţriđjudagseftirmiđdag.Upphaflega var meiningin ađ vera međ mót fyrir börn og unglinga en allir vildu vera međ ţannig ađ 44 tóku ţátt í ađalmótinu fyrir yngri en 18 ára og nokkuđ fćrri í hliđarmóti fyrir ţá eldri.Tefldar voru sjö umferđir og stjórnađi Knud Eliassen tölvuskráningu og mótshaldi í samstarfi viđ okkur piltana, Arnar og Sverri.

Eins og viđ var búist var stuđ og fjör en gekk ţó allt saman ótrúlega vel fyrir sig.CIMG0013Ţátttakendur voru semsagt frá sex ára til sautján og í stóra mótinu var aldurinn 18-32. Í eldri flokki hafđi aldursforsetinn Lars Simonsen sigur eftir harđa baráttu viđ Aqqalu Brönlund. Lars var međ 9 vinninga af 10 mögulegum og Aqqalu 8.

En bikarinn og gullpenininginn, auk ýmissa gjafa, hlaut hinn fjórtán ára Theodor Napatoq sem hlaut 6 vinninga af sjö. Sex vinninga hlutu einnig ţau Julian Anike og Sikkerninnguak Lorentzen, sex krakkar hlutu fimm vinninga, ţar á međal afmćlisdrengurinn Karl Napatoq sem veiddi kvöldverđ sendibođanna, en hann varđ sautján ára.100_1903b

Kvöldverđarbođ var semsagt hjá eđalhjónunum Jaerus og Nicolinu, páskamoskuxi snćddur og heldur betur huggulegur endir á góđum degi. Heyrđum viđ símleiđis í Paulus, elsta syni ţeirra, sem vildi upplýsingar um mótiđ og sagđist hitta okkur í sumar á leiđ sinni til Ittoqqortoormiit. Ţó hann sé blindur hefđi hann örugglega komist á pall í mótinu, drengurinn er snilli.

 


páskadagur i Ittoqqortoormiit

 

vinir óttarsPáskadagurinn var mikill heimsóknardagur. Um morguninn kom vinur okkar Josef Napatoq, sem verđur fjórtán ára á föstudaginn. i spjall og ţó viđ höfum veriđ vinir í ţrjú ár, ţá var vináttan innsigluđ er hann mćtti í KA galla í gráu höllina okkar.

Veđriđ var ekki slćmt en meiningin hafđi veriđ ađ skreppa í hundasleđaleiđangur yfir í Kap Tobin og ţvi var frestađ vegna lélegs skyggnis. Ţví nćst komu ţeir félagar, John og Daniel, tíu og átta, til ađ óska okkur gleđilegra páska og ţiggja smá nammiveitingar. Voru ţeir ţvílíkt uppstrílađir og flottir og í svakastuđi.

Upp úr hádegi fórum viđ Sverrir til Knud Eliassen og Elnu konu hans til ađ komast á netiđ og setja inn greinar á grannan og facebook, kíktum svo í skólann ađ skođa birgđastöđuna. Kom ţá Jaerus Arqe, sem hefur eftirnafniđ Arqe ţó öll börnin sex hafi eftirnafniđ Napatoq eftir móđurfjölskyldunni, á snjósleđanum sínum og bauđ okkurí túr yfir í Kap Tobin. Ţađ var heldur betur ţegiđ og svo fór öll hersingin af stađ eftir ađ hafa klćtt sig í allskyns galla, flís og ullarpeysur, enda kallt á svona ferđalagi.Karl, nćstelsti sonur ţeirra hjóna sem er sautján ára i dag, annan í páskum, var ađ koma úr veiđiferđ ţar sem hann náđi sér i moskuxa og hefur okkur veriđ bođiđ í veislu í kvöld.

Paulus Napatoq er ađ verđa nítján og er í blindraskóla í Danmörku en hann er skáksnillingur og viđ sjáum hann ţví miđur ekki í ţessari ferđ. Ţrátt fyrir ađ eiga sex börn tóku hjónin  ađ hana Miu litlu, sem er fimm ára, svona eins og ţađ vćri ekkert mál... Mia er snillingur og ótrúlega hress og passar nafniđ algjörlega viđ hana.fjölskyldan viđ heitu laugar grćnlandsEn hersingin lagđi af stađ, ţrjú á sleđanum og sex stykki í sleđa í eftirdragi. Ţetta var ótrúlega magnađ, allir á útkíkki eftir ísbirni en miđađ viđ öll skinnin sem hanga um bćinn og í Kap Tobin ţá hafa ţeir veriđ ađ vćflast um sundiđ ađ undanförnu. En byssan var međ í för ađ sjálfsögđu, enda Jaerus međ varann á í fjölskylduferđ. „Ţeir eru hćttulegir“ segja krakkarnir og viđ félagar rengjum ţađ ekki, enda skilur mađur ekki hvernig er ađ búa svona innan um hvítabirni bókstaflega.

Í Kap Tobin eru heitar laugar, áttatíu gráđu heitt vatn og skilst okkur ađ ţađ séu einu heitu laugar Grćnlands. Ţetta var ótrúleg sjón ţar sem ísbreiđan lá yfir ađ trítla allt í einu á steinum í gufubađi.

Ţegar heim var komiđ héldu ungir gestir áfram ađ streyma í heimsókn, svona til ađ tékka á ţví hvort viđ yrđum ekki örugglega klárir í mótiđ á morgun. Allir munu fá vinninga og bikarar og medalíur eru stofustáss í gráu höllinni og allir ćtla ađ reyna viđ bikarinn. Páskamót Tĺrnet – Skakklub á mánudegi og Pásamót Hróksins á ţriđjudegi. Ţetta verđur stuđ og ţó hart sé barist ţá er gleđin algjörlega allsráđandi. Ţegar mađur horfir yfir hópinn og sér brosin á andliti krakkanna ţá er mađur sannfćrđur endanlega um ađ skákvćđingin á Grćnlandi, sem hefur veriđ ţorpum austurstrandarinnar, sé algjörlega máliđ. Fólkiđ sem býr hér segir ađ ţetta sé algjörlega máliđ. Krakkarnir spyrja eftir ţeim sem hafa veriđ í för áđur, Róberti Lagerman, Stefáni Herberts, Ţórđi Sveins, Andra Thorstensen, Óla Kolbeini og Írisi og muna nöfnin. Robbi er held ég frćgasti útlendingurinn í Ittoqqortoormiit eftir fjölteflin og mótin. Jamm, ţetta er sko máliđ.

og nú er bara ad grćja sig í mótid....

 


Tafl

 

 arnar og sussie

Susse Josefsen er snilli. Hun er sex og hefur biladan áhuga á skák. med henni á myndinni eru Arnar Valgeirsson, Sivert, John og Mia. Bilad gaman í skákinni....

 


ţvílíkt fjör í grunnskólanum

 

Á föstudaginn langa buđu leiđangursmenn til matarveislu í gráu höllinni sinni. Knud Eliassen, ađalhjálparhella og Elna kona hans komu ásamt Jaerus sem á sjö börn í skákinni ţar sem fremstur í flokki hefur fariđ undanfarin ár hann Paulus Napatoq. Sá piltur er blindur en náđi ótrúlegum árangri á stuttum tíma og vann td 60 manna mót hér í skólanum ári eftir ađ hann lćrđi mannganginn. Paulus er nú staddur í Danmörku ţar sem hann gengur í skóla. Nicoline kona Jaerusar var í vinnu svo dóttir hans hún Doddi kom međ í veisluna. Doddi er besti vinur Dodda eđa Ţórđar Sveinssonar, eđallögmannsins sem var međ í för 2008.borđ fimmGćrdagurinn var frábćr. Ţrátt fyrir leiđindaveđur sem gerđi einhverja túrista ađ strandaglópum í bćnum, ţá brutust yfir 40 ungmenni í skólann til ađ tefla. Eftir hálfíma kennslu ţá var hópnum skilpt í 7-8 manna aldursskipta hópa og sett upp mót. Einn leiđtogi var í hverri grúppu sem sá um ađ skrá inn úrslit sem gekk ótrúlega vel miđađ viđ ađ ţetta höfđu krakkarnir ekki lćrt. Voru ţau frá sex ára og elsti hópurinn var 18 ára til ţrítugs.Ekki var dauđur punktur í ţessa klukkutíma sem skákin stóđ yfir enda hart barist og sigrum fagnađ međ dansi. Gaman er lika ađ sjá hve margir krakkar eru orđin býsna flink og tefla ţónokkuđ heimaviđ, ekki síst ţćr vinkonur  Pauline Anike og Sikkerninnguaq Lorentsen sem báđar unnu sína flokka og héldu utan um skráningu. Sverrir er reyndar alveg gáttađur á nokkrum talentum hér og fullyrđir ađ ţau myndu ná langt ef ţau fengju reglulega kennslu.sigurvegararAllir ţátttakendur fengu glađninga frá Actavis og Eymundsson og sigurvegararnir páskaegg frá Bónus. Ekki verđur teflt í dag í skólanum á páskadag sem er haldinn heilagur en ţeim mun harđar tekiđ á ţví mánudag og ţriđjudag međ tveimur mótum. Ellefu kassar međ vinningum voru sendir á undan  sendibođum Hróksins og spenningur í krökkunum. Gaman er ađ sjá ađ foreldrar eru farnir ađ kíkja mikiđ viđ í skólann ađ fylgjast međ og fólk er mjög hafmingjusamt međ framtak Hróksins sem sendir leiđangur nú fjórđu paskana í röđ. Ţykir fólki mikiđ til koma ađ eitthvađ skuli sett á fót sem er viđhaldiđ ţví satt ađ segja er ekki mikiđ um ađ vera hér fyrir krakkana. En ţau er sko ćst í skák...

 


Glađur eyjapeyji

 

sverrir sleđiAđ vakna á Páskadagsmorgni í Ittoqqortoormiit er alveg stórkostlegt.  Líta út um gluggann og sjá ţjóđfánann blakta viđ hún og neđar í götunni  má sjá bjarndýraskinn strekkt á grind. Viđ félagarnir höfum nefnt hann til heiđurs fyrrverandi  forseta Skáksambandsins. Litadýrđ húsanna magnast upp í snćvi ţöktu umhverfinu og regluleg má heyra spangól sleđahundanna, sem skipta hundruđum í ţessu afskekktasta ţorpi Grćnlands. Ótrúleg reynsla fyrir okkur venjulegu Íslendingana .Okkur er allsstađar tekiđ vel og ţegar viđ erum á ferđinni koma alltaf nokkrir krakkar til ađ spyrjast fyrir um hvenćr verđi teflt nćst. Ţegar viđ mćtum í skólann er kominn biđröđ fyrir utan og allir vilja vera fyrstir inn til ađ hefja baráttuna á reitunum 64. Ţetta verkefni hefur gríđarlega gott orđ af sér hér á stađnum og vonandi verđur hćgt ađ halda ţessu áfram á komandi árum.granni húsViđ Arnar erum nú búnir ađ vera hér í 4 daga og haft nćg verkefni viđ kennslu og mótahald. Gleđin skín úr augum krakkanna og alveg ótrúlega margir sem eru frambćrilegir í skáklistinni, miđađ viđ hversu litla kennslu ţau hafa haft. Í gćr komu hátt í 50 manns í skólann, ţó ađ veđriđ hafi veriđ međ versta móti. Nokkrir innan hópsins fengu ţađ hlutverk ađ stjórna litlum mótum og reyndist ţađ virkilega vel.  Reynsla sem á eftir ađ koma sér vel.Tvö stćrstu mótin eru eftir  á morgun og ţriđjudag. Ţá má búast viđ miklum fjölda og verđa allir leystir út međ gjöfum og sigurvegararnir fá bikara og verđlaunapeninga.

Sverrir Unnarsson


Kap Tobin

knud kap tobin

Knud Eliassen, kennari og formađur Tĺrnet, tók ţessa nýlega í Kap Tobin. Ittoqqortoormiit viđ Scoresbysundiđ í baksýn. Scoresbysund er breiđasta sund í heimi, 80 km, takk fyrir..


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Leiðangursmenn

,,Við erum ein fjölskylda"
,,Við erum ein fjölskylda"

Fréttir af landnámi skákarinnar og starfi Hróksins og Kalak á Grænlandi.

Fćrsluflokkar

Feb. 2025
S M Ţ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband